05.03.2026
Líkt og mörg undangengin ár birtum við nú út yfirgripsmikinn vörulista yfir sáðvörur fyrir bændur. Nú hefur ítarlegri umfjöllun um lykilvöruflokkana og helstu eiginleika þeirra verið bætt við og ætti það að auðvelda valið. Kynntu þér landsins mesta úrval af sáðvöru í nýjum og efnismiklum sáðvörulista Líflands fyrir vorið 2026!
02.03.2026
Í dag, 2. mars, lækkar verð á öllu kjarnfóðri úr framleiðsu Líflands. Lækkunin er breytileg eftir vörutegund en um 0,5%-3,1%.
Lækkunin er að talsverðu leyti tilkomin vegna styrkingar krónunnar en einnig vegna hagstæðra samninga um hráefnakaup.
27.02.2026
Fataútsala Líflands er nú hafin í öllum verslunum Líflands og vefverslun. Við rýmum fyrir nýjum vörum og bjóðum nú 30-70% afslátt af reiðfatnaði og lífstílsfatnaði.
19.02.2026
Í tilefni konudagsins er 20% afsláttur af öllum fatnaði og skóm í verslunum Líflands 19. - 21. febrúar. Kíktu til okkar og gerðu frábær kaup.
05.02.2026
20% afsláttur af öllu ARION hunda- og kattafóðri dagana 5.-9. febrúar í öllum verslunum Líflands og vefverslun.
28.01.2026
20% afsláttur af öllum fatnaði frá Eques, Tenson, Kingsland, Ariat, Kari Traa og Mountain Horse dagana 28. janúar til 2. febrúar í öllum verslunum Líflands og vefverslun
15.01.2026
Dagana 15. - 19. janúar verða Heilsudagar hestsins í öllum verslunum Líflands og í vefverslun. 20% afsláttur af hestafóðri og bætiefnum. Verið velkomin.
09.01.2026
Dagana 8.-13. janúar verður 15-20% afsláttur af umhirðuvörum fyri hesta og gæludýr í verslunum Líflands og vefverslun.
31.12.2025
Nú um áramót hækkar verð á kjarnfóðri úr framleiðslu Líflands um 2%. Verðhækkunin er tilkomin vegna breytinga á fjölmörgum kostnaðarliðum í rekstrarumhverfi félagsins um áramótin. Hækkunin gildir frá 1. janúar.
05.12.2025
Lífland hefur nú birt áburðarverðskrá fyrir vorið 2026! LÍF áburður hefur verið fáanlegur á íslenskum markaði í rúman áratug og fest sig í sessi sem traustur og hagkvæmur valkostur fyrir íslenska bændur. Í samstarfi við Glasson Fertilizers í Bretlandi bjóðum við upp á gott úrval fjölkorna áburðar sem hentar fyrir íslenskar aðstæður. Við þökkum sívaxandi hópi bænda traustið og leggjum metnað í að standa undir því á hverju ári.