Karfan er tóm.
PAVO PodoGrow er úrvals kjarnfóður fyrir folöld og trippi frá því að þau eru vanin af spena og fram á þriðja ár. Fóðrið inniheldur öll lykilnæringarefni sem styðja við heilbrigðan vöxt og þroska ungra hrossa. Hágæða prótein og lykilamínósýrur styðja við uppbyggingu vöðva og heilbrigðra vefja á meðan rétt hlutfall steinefna á borð við kalk, fosfór og magnesíum stuðlar að eðlilegri myndun beina og liða.
Á fyrstu árum hestsins er mikilvægt að vöxtur sé jafn og stöðugur. Of hraður eða ójafn vöxtur getur aukið líkur á vandamálum í liðum og stoðkerfi. PAVO PodoGrow veitir næga og auðnýtanlega orku ásamt hágæða prótínum sem styðja við heilbrigðan þroska og jafnan vöxt.
PodoGrow inniheldur hina sérsniðnu Podo® steinefnablöndu frá Pavo sem þróuð hefur verið sérstaklega fyrir unghross. Rannsóknir hafa sýnt að Podo® hugmyndafræðin getur dregið verulega úr líkum á þroskunarvandamálum í liðum hjá folöldum og ungum hrossum. Fóðrið inniheldur einnig auðupptekin snefilefni eins og kopar, sink og mangan sem styðja við styrk beina, liða og stoðvefja.
Auk þess inniheldur PodoGrow góðagerlabætandi efni og CellProtect andoxunarkerfi sem styður við heilbrigða meltingu, upptöku næringarefna og vernd frumna gegn sindurefnum.
PAVO PodoGrow hefur einnig reynst einstaklega vel sem kjarnfóður fyrir holdgrönn og orkukræf hross sem erfitt er að koma holdum á. Fóðrið hentar því ekki eingöngu folöldum og trippum heldur einnig fullorðnum hrossum sem þurfa aukna orku og stuðning við holdafar.
Fóðrunarleiðbeiningar:
Fyrir hross með áætlaða fullorðinsþyngd um 300 kg:
6–11 mánaða: 1,0 kg á dag
12–18 mánaða: 0,6 kg á dag
18–30 mánaða: 0,75 kg á dag
Fyrir hross með áætlaða fullorðinsþyngd um 600 kg:
6–11 mánaða: 2,1 kg á dag
12–18 mánaða: 1,2 kg á dag
18–30 mánaða: 1,5 kg á dag
Smám saman er ráðlagt að færa hross yfir á fóður fyrir fullorðin hross á aldrinum 30–36 mánaða.
Fullorðin hross: 0,5–1,5 kg á dag eftir þörfum.
Ein full fóðurskófla af PAVO PodoGrow inniheldur um 1,3 kg.
Samsetning: Bygg, hveitifóður, ristað sojamjöl (erfðabreytt), sojahýði, sólblómafræmjöl, reyrmelassi, hveiti, hörfræ, kalksteinn, laktósi, sojaolía, natríumbíkarbónat, magnesíumoxíð, mónókalsíumfosfat, ölger og CellProtect andoxunarkerfi.
Greiningarþættir: Meltanleg orka (DE) 11,3 MJ/kg, hráprótein 16%, hrátrefjar 8%, hráfita 5%, hráaska 8,5%, sykur 10%, sterkja 25%, kalsíum 1,2%, fosfór 0,6%, magnesíum 0,65%, natríum 0,4%, kalíum 1,2%, lýsín 6,7 g og metíónín 2,5 g.
Aukefni pr. kg: A-vítamín 18.000 AE, D3-vítamín 3.000 AE, E-vítamín 425 mg, B1-vítamín 45 mg, B2-vítamín 18 mg, B6-vítamín 12 mg, K3-vítamín 4 mg, D-bíótín 630 mcg, pantóþensýra 26 mg, níasínamíð 36 mg og fólínsýra 10 mg.
Snefilefni pr. kg: kopar 78 mg, járn 144 mg, sink 312 mg, mangan 198 mg, selen 0,96 mg og joð 1,2 mg.
Magn: 20 kg poki.