Pavo nýjungar!

Pavo GutHealth
Pavo GutHealth

Pavo GutHealth

Vörunúmer BTR10071

Fóðurbætir fyrir hesta með meltingarvandamál eða eru með viðkvæman maga. Pavo GutHealth hjálpar til við að koma jafnvægi á meltinguna. Inniheldur góðgerla sem hjálpa til við meltinguna.

Varan er ekki til í netverslun okkar eins og er en getur verið til í öðrum verslunum eða á miðlager okkar.
Frekari upplýsingar fást hjá söluráðgjafa í síma 540-1100.
Verðmeð VSK
16.990 kr.
Verðán VSK 13.702 kr.

Fóðurbætir fyrir hesta með meltingavandamál eða eru með viðkvæman maga. Einnig gott að nota ef snöggar breytingar verða á fæðuvali, eins og þegar hestum er sleppt á haga eða teknir á hús. Gott til að hjálpa til í streituvaldandi aðstæðum. Pavo GutHealth hjálpar til við að koma jafnvægi á meltinguna. Inniheldur góðgerla sem hjálpa til við meltinguna og gera óæskilegum bakteríum erfitt fyrir að setjast að í meltingarvegi hestsins.

Frá náttúrunnar hendi hafa hestar mjög viðkvæman meltingarveg. Það þýðir að breytingar í fóðrun, t.d. þegar hestum er sleppt eða þeir teknir aftur á hús, getur breytingin í fóðrun valdið meltingarvandamálum. Streita sem orsakast af breytingum, t.d. ef þeir eru fluttir milli hesthúsa, eða ef þarf að framkvæma aðgerð á þeim getur einnig valdið því að vandamál koma upp í meltingu. Meltingarvandamál tengjast oft á tíðum ójafnvægi í þarmaflóru hestsins sem veldur því að hesturinn getur ekki melt fóðrið eins vel og hann ætti að geta. Þetta getur leitt til þess að ójafnvægi verður í slímhimnum, hesturinn fær niðurgang, magakrampa og önnur meltingavandamál. 

Pavo GutHealthvar sérstaklega þróað til að styðja við heilbrigða meltingarstarfsemi hestsins með því að koma jafnvægi á góðgerlaflóruna í meltingaveginum. Inniheldur 100% náttúruleg efni sem tryggir að æskilegir gerlar í smáþörmum og ristli fái hámarks stuðning til að hindra aðgang óæskilegra baktería að meltingarvegi hestsins. GutHealth inniheldur eplahrat og sykurrófuhrat, sem auka bindingu vatns í meltingarveginum og verja innra byrði þarmanna. Bygggras inniheldur mikið af nauðsynlegum vítamínum, steinefnum og afoxandi efnum sem tryggja jákvæð áhrif á ónæmiskerfi þarmanna. Brenninetla er þekkt fyrir eiginleika sem hreinsa blóðið og hjálpa til við að koma í veg fyrir sýkingar. Oreganó olían í fóðrinu gerir það lystugt en olían er bakteríudrepandi og hefur því ákveðna sótthreinsieiginleika. Fóðrið inniheldur líka Diamond V og inúlín sem ýta undir starfssemi góðgerlanna sem og CellProtect sem fangar óæskilegar oxandi sameindir (sindurefni) í líkama hestsins og hlutleysir þær.

Ráðlagður dagsskammtur fyrir hver 100 kg lífþunga: um 42 g (125g fyrir 300 kg hest, 250 gr á dag fyrir 600 kg hest). Hámark 2 kg á 600 kg dýr á dag.

Greiningarþættir: Hráprótein 11,2%; hráfita 6,8%; hrátréni 17,8%; hráaska 11,0%; sykur 7,7%; sterkja 7,9%; orka 6,1MJ; kalsíum (Ca) 1,6%; fosfór (P) 0,3%; natríum (Na) 0,18%; kalíum (K) 1,3%; magnesíum (Mg) 0,13%, sink (Zn) 960 mg.

Innihald: Refasmári (alfalfa), Rúgklíð, sykurrófuhrat, eplahrat, bygggras, kalsíumkarbónat, brenninetla, inúlín, mysuprótein, ger, sojaolía óerfðabreytt, þrúgusykur, Saccharomyces cerevisiae CNCM I-1077 .

Nettóþyngd: 7,5 kg.

Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana