Flýtilyklar
Bætiefni nautgripir
HIMAG Magnesíumfata 20kg
HIMAG fatan inniheldur viðbótarmagn af magnesíum en einnig hagstætt hlutfall kalsíum og fosfórs. Fatan er einnig rík af öllum helstu stein- og snefilefnum og vítamínum sem kýr og kindur þarfnast.
HIMAG Magnesíumfatan inniheldur viðbótarmagn af magnesíum, auk þess að innihalda ríkulegt magn af nauðsynlegum steinefnum, snefilefnum og vítamínum. Fatan inniheldur melassa, sem gerir blönduna lystuga.
HIMAG Magnesíumfatan er hentug til notkunar bæði innan- og utandyra.
Magnesíum er einkar mikilvægt dýrum til að vöðvar og taugar starfi eðlilega. Ef magn magnesíums verður of lítið fer taugastarfssemin úr skorðum sem leiðir til þess að dýrin fá vöðvakrampa, gnísti tönnum og froðufelli. Skortur á magnesíum hjá kúm og kindum getur leitt af sér að þær þjáist af graskrampa eða fjóskrampa og getur jafnvel leitt til dauða.
Notkun:
Ráðlagður skammtur fyrir sauðfé er 30-50 g/dag.
Ráðlagður skammtur fyrir kýr er 100-150 g/dag.
20kg
-
Trouw kúafata 20kg
Verð6.890 kr. -
Sauðfjárfata
Verð8.590 kr. -
Kálfafata
Verð8.990 kr. -
Festing fyrir bætiefnafötur
Verð12.690 kr.
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.