Flýtilyklar
Bætiefni hesta
Blue Hors Hip C - Boost
Blue Hors Hip C styrkir ónæmiskerfið og ýtir undir heilbrigða meltingu með trefjum og ávaxtasýrum. Hip C inniheldur mikið af beta-karotíni, C-vítamíni og steinefnum.
Mælt er með því að nota Hip C gegn streitu, við erfiða þjálfun, fyrir ræktunarhryssur, gegn veiku ónæmiskerfi og þegar framleiðsla C vítamíns er lág.
Rósaldin eða rósanýpa er ávöxtur sem inniheldur hátt hlutfall C-vítamíns og betakarótíns. Hip C inniheldur hýði í duftformi og fræ sólþurrkaðs hágæða rósaldins, blandað með hreinu C-vítamíni. Bíoflavóníð í rósaldini ýtir undir upptöku C-vítamíns.
C-vítamín styrkir ónæmiskerfið, eykur upptöku járns, hraðar gróanda í sárum og auðveldar líkamanum bein og bandvefjavöxt.
Leiðbeiningar um notkun:
- 500 kg (lífþungi): 35 g/dag 1 mál
- 350 kg (lífþungi): 20 g/dag 1/2 mál
- Blandið við annað fóður rétt fyrir gjöf.
Greiningarþættir:
Hráprótín 3.90%
Lignín 27.10%
Hráaska 2.80%
Vatn 6.70%
Hráfita 3.60%.
Samsetning:
80% Rósaldin/nýpur (þurrkað hýði og kjarnar)
20% C-vítamín.
1,5 kg fata
Virðisaukaskattur er dreginn af vörum til útflutnings.
Virðisaukaskatturinn er 24% af öllum vörum nema bókum og tímaritum sem bera 11%.