Heysýnataka og fóðurráðgjöf

Á síðastliðnum árum hefur Lífland aukið þjónustu við kúabændur, einkum á sviði ráðgjafar um fóðrun. Lífland hefur um árabil boðið upp á heysýnatöku og greiningu þeirra, í samstarfi við rannsóknarstofurnar Efnagreiningu ehf á Hvanneyri og BLGG AgroXpertus í Hollandi, en niðurstöður heysýna eru grundvöllurinn fyrir góðri fóðuráætlun. Sýnin eru tekin með heysýnabor úr fullverkuðum heyjum og send með skjótum hætti í greiningu. Niðurstöður greiningar berast svo 7-14 dögum eftir að sýnin eru send út, sem tryggir skjóta og góða þjónustu við bændur.

Kýr

Hvernig gagnast niðurstöður úr heysýnum

Heysýni gefa upplýsingar um ástand og gæði gróffóðursins, sem er undirstaða fóðrunar á hverju búi. Margvísleg gildi eru mæld, m.a. þurrefnisinnihald, prótein, tréni, meltanleiki, sykur, gildi sem gefa vísbendingar um verkun og lystugleika (ammoníak og smjörsýra), AAT og PBV gildi auk stein- og snefilefna svo nokkur lykilatriði séu nefnd. Niðurstöðurnar einar og sér geta gefið vísbendingar um hvert þarf að stefna með heildarfóðrun gripanna, þá með tilliti til kjarnfóðurs og annarra fóðurefna sem gefin eru með heyjum. Niðurstöðurnar gagnast einnig beint í fóðuráætlunargerð.

Gerð fóðuráætlana

Lífland býður nú upp á fóðuráætlanagerð í hollenska NutriOpt kerfinu þar sem skoðað er hver af hinum fjölmörgu kjarnfóðurblöndum Líflands hentar best viðkomandi heyjum. Hefur verið unnið að því í talsverðan tíma að innleiða kerfið og þjálfa starfsmenn fyrirtækisins í notkun þess, en að þessu hefur verið unnið í samvinnu við hollenska ráðgjafarfyritækið Trouw Nutrition í Hollandi.

Fóðuráætlanir ganga út á það að finna heppilegustu nálgun á fóðrun mjólkurkúa miðað við þau fóðurefni sem í boði eru, aðstæður og samsetningu hjarðarinnar, afurðir og síðast en ekki síst, lífeðlisfræði gripanna.

Eftirfylgni mikilvæg

Fóðuráætlanir og heysýni eru gott verkfæri til að nálgast fóðrun á skilvirkari og nákvæmari hátt, en hvorug tveggja er þeim annmörkum háð að vera nálgun á raunverulegar aðstæður. Því er eftirfylgni mikilvægur þáttur. Ráðgjafar Líflands heimsækja búin sé þess óskað og geta tekið út aðstæður og aðbúnað. Einnig býður Lífland bændum að fylgjast með niðurstöðum tank- og kýrsýna, hvort sem slíkt er sent reglulega til ráðgjafa fyrirtækisins eða með því að veita þeim aðgang að vefsvæði Auðhumlu þar sem nálgast má ítarlegri upplýsingar um framleiðslu hvers bús. Einnig eru ráðgjafar fyrirtækisins ávallt tilbúnir til skrafs og ráðagerða.

Gott fóður og gæðaeftirlit

Til að fylgja eftir kröfum samtímans um gott verð og jöfn og góð gæði kjarnfóðurs þá hefur Lífland innleitt nýtt bestunarkerfi til utanumhalds um fóðuruppskriftir. Kerfið er hluti af NutriOpt fóðuráætlunarkerfinu sem Lífland hefur nýverið innleitt. Samhliða þessu fjárfesti fyrirtækið í innrauðum greiningarbúnaði af fullkomnustu gerð, svokölluðu NIR tæki frá Foss í Danmörku. Tækið greinir á skjótvirkan og nákvæman hátt efnainnihald hráefna og tilbúins kjarnfóðurs og eru framkvæmdar tíðar og reglubundnar mælingar á hráefnum og kjarnfóðri, sem samhliða bestunarkerfinu, gerir fyrirtækinu kleift að lágmarka sveiflur í efnainnihaldi fóðurs.

Vinsamlega hafðu samband og pantaðu heysýnatöku í tæka tíð. Ráðgjafar Líflands veita nánari upplýsingar í s. 540-1138 eða lifland@lifland.is

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Óseyri 1  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstubraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5| 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Skrifstofa  |  Brúarvogi 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is