Veffræðsla - Heilbrigðar kýr, auknar daglegar afurðir

Fimmtudaginn 27. janúar kl. 13 verður haldinn veffræðslufundur þar sem sérfræðingar Trouw Nutrition munu fjalla um nýjar lausnir til að bæta heilsufar mjólkurkúa. Fundurinn er opinn öllum en nauðsynlegt er að skrá sig.
 
Heilbrigðar kýr gefa af sér meiri og betri afurðir. Með bættu heilsufari í fjósum landsins má bæta líðan dýranna, hafa bein áhrif á afkomu búanna, bæta vinnuumhverfið og efla ímynd íslensks landbúnaðar. Trouw Nutrition, sem starfar fyrir bændur víða um heim, hefur nú þróað líkan sem er auðvelt í notkun, þar sem bændur geta sjálfir greint stöðuna á búi sínu og í kjölfarið sett sér markmið um bætta afkomu. Í þessari veffræðslu verður meðal annars komið inná helstu þekktu áhættuatriðin á lífskeiði mjólkurkúa og hvernig hægt sé að mæta þeim með fyrirbyggjandi hætti.
 
Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn 
 
Lífland hefur um árabil boðið bændum upp á fræðslufundi undir nafninu Þorraþræll, sem bændur hafa mátt sækja í verslanir okkar og á fleiri staði um landið. Í ljósi aðstæðna munum við færa fundina inn í stofu til þín, með því að bjóða upp á fræðslufundinn á vefnum.
 
Í veffræðslunni munu sérfræðingar Trouw Nutrition, sem eru íslenskum kúabændum vel kunnir, fjalla um nýjar lausnir til að bæta heilsufar mjólkurkúa og auka með því daglegar afurðir þeirra.
 
Veffræðslan er ókeypis og opin öllum en nauðsynlegt er að skrá sig. Þrír heppnir gestir hreppa svo góðan gjafapakka með bætiefnum fyrir mjólkurkýr, sem ætti að nýtast vel á öllum kúabúum.
 
Tekið skal fram að fyrirlesturinn fer að mestu fram á ensku, en glærur eru á íslensku og ensku. Við höfum viðburðinn lifandi með því að bjóða ykkur að taka þátt í umræðunni með spurningum í gegnum netið og með því að þátttakendur svari stuttum spurningum inn á milli í fyrirlestrinum sjálfum.
 

>> Skráðu þig hér


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana