Smákökusamkeppni KORNAX og Gestgjafans

Bakar þú, eða einhver sem þú þekkir bestu smákökur í heimi? Það er komið að þessum tíma ársins aftur, Smákökusamkeppni Kornax og Gestgjafans!

Keppnin fer fram 22. október næstkomandi. Við leitum aftur að bestu súkkulaðismákökunni en skilyrði fyrir þáttöku er að í smákökunum sé bæði KORNAX hveiti og súkkulaði frá Nóa Siríus.

Svona fer keppnin fram:
Dæmt verður eftir bragði, áferð, lögun og lit og hvort sýnishorn séu einsleit og vel unnin. Senda skal u.þ.b. 15 smákökur í gegnsæju íláti, krukku eða plastpoka merktum með dulnefni. Rétt nafn, símanúmer og uppskrift skal látin fylgja með í lokuðu umslagi. Hver þáttakandi má einungis senda eina kökutegund. Kökunum þarf að skila inn þann 22. október n.k. á milli kl. 8:00 og 16:00 á skrifstofu KORNAX að Brúarvogi 1-3, 104 Reykjavík.

Verðlaunauppskriftinar munu birtast í kökublaði Gestgjafans sem kemur út þann 6. nóvember. Verðlaunin eru mjög vegleg:

1. vinningur
Glæsileg Kitchen-Aid hrærivél frá Einari Farestveit, KORNAX hveiti í baksturinn, ársáskrift að Gestgjafanum, gjafakarfa frá Nóa Siríus, smakkseðill fyrir tvo á veitingastaðnum Fiskmarkaðnum eða Grillmarkaðnum, Lukué makkarónusett frá versluninni Kokku, gjafabréf frá versluninni Nettó að verðmæti 30.000 kr.

2. vinningur
KORNAX hveiti í baksturinn, ársáskrift að Gestgjafanum, gjafakarfa frá Nóa Siríus, gjafabréf frá versluninni Nettó að verðmæti 20.000 kr.

3. vinningur
KORNAX hveiti í baksturinn, ársáskrift að Gestgjafanum, gjafakarfa frá Nóa Siríus, gjafabréf frá versluninni Nettó að verðmæti 10.000 kr.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana