Nýr mjaltaþjónn á Syðsta-Ósi

Sveinn Óli Friðriksson ábúandi á Syðsta-Ósi í Húnaþingi vestra réðst í miklar breytingar á húsakosti jarðarinnar fyrir ekki löngu. Útihúsi sem upphaflega var byggt sem fjárhús árið 1975 var breytt í lausagöngufjós með 54 legubásum. Gólf hússins var fjarlægt og steinbitar settir í staðinn með tilheyrandi múrbroti og steypuvinnu. Legubásar voru settir upp auk átgrinda. Nýlega var gangsettur nýr Dairy Robot R9500 frá GEA í fjósinu og nýr 5.000 l mjólkurtankur frá sama aðila. Mjaltaþjónninn er af fullkomnustu gerð, m.a. með Cow Scout beiðslisgreini og tvöfaldri mjólkursíu og úttaki fyrir kálfamjólk. Nytin hefur aukist og líftala og frumutala í lágum gildum. Sveinn Óli er mjög ánægður hvernig til hefur tekist og himinlifandi með nýja mjaltaþjóninn.

Sveinn Óli Friðriksson

Sveinn Óli tók við rekstri búsins árið 2013 og keypti sig inn í það 2018 en auk hans er það  í eigu  móður hans, Þórunnar Guðfinnu Sveinsdóttur. Aðrir ábúendur á Syðsta-Ósi eru Böðvar Friðriksson bróðir Sveins, Jón Böðvarsson og Ingibjörg Jóhannesdóttir, dóttir þeirra Ingibjörg Jónsdóttir og tengdasonur Guðjón Þórarinn Loftsson og börn þeirra.  

Jörðin er samtals um 400 ha þar af 70 ha af ræktuðu landi. Sveinn heyjar í stæður sem eru innandyra en auk þess er hann með töluverða kornrækt. Heyfengnum, korninu og kurðuðum maís blandar hann saman í heilfóðurblandara og dreifir fóðrinu með litlum fóðurvagni. Þess fyrir utan fá kýrnar Kost 16 frá Líflandi. Mjólkurkvóti er nú 270.000 l og fer stækkandi.

Lífland óskar Sveini Óla til hamingju með nýja fjósið og þennan frábæra mjaltaþjón.

Þess má að lokum geta að hann hyggst halda opið fjós þegar vorverkum lýkur og munum við kynna það nánar á heimasíðu okkar.


Sveinn Óli Friðriksson ásamt Böðvari Friðrikssyni bróður sínum


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana