Nýr hestafóðrunarbæklingur Líflands er kominn út stútfullur af greinargóðum upplýsingum um vöruúrval í hestafóðri og hestabætiefnum. Susanne Braun dýralæknir skrifar formála að bæklingnum og við flesta vöruflokkana má finna fróðleikspunkta frá Susanne sem ættu að nýtast fjölmörgum við val á því hvað hentar best hverju sinni. Í bæklingnum er að finna góða yfirlitstöflu yfir úrval Líflands í hestafóðri sem ætti að auðvelda val á réttu vörunni.
Þess má geta að vöruúrval Líflands á sviði hestafóðurs og bætiefna hefur vaxið mikið á undanförnum árum með vörumerki á borð við Pavo og Blue Hors í fararbroddi. Ekki er hægt að segja annað en að hesteigendur hafi tekið stórauknu úrvali fagnandi sem bæði ætti að auka árangur, heilbrigði og velferð íslenskra reið- og keppnishesta.
Þú getur nálgast bæklinginn rafrænt, en einnig í prenti í næstu verslun Líflands og hjá Baldvin & Þorvaldi á Selfossi.