Nýjar áherslur hjá Mountain Horse

Nýtt Mountain Horse logo
Nýtt Mountain Horse logo

Við hjá Líflandi erum mjög spennt yfir nýju Mountain Horse vorlínunni 2016 sem kemur í verslanir innan skamms. Hér er "press release" sem Mountain Horse var að senda frá sér fyrir komandi vorlínu.

Mountain Horse – Beyond the ride

Mountain Horse kynnir nýtt framsækið og nýtískulegt útlit ásamt nýju lógói. Nýja Mountain Horse útlitinu er hleypt af stokkunum með vorlínu þessa árs undir merkjunum “minna er meira”. Línan er klæðileg og ætti hver knapi að finna sér sitt uppáhald. Hjá Mountain Horse hönnum við fatnaðinn eftir þörfum knapanna okkar.

Við leggjum áherslu á nýtilega hönnun og tæknileg og vönduð efni ásamt klassísku útliti fyrir hverja árstíð. Mountain Horse kappkostar að framleiða hágæðafatnað sem á að vera nýtilegur, glæsilegur og þægilegur. Nýjung vorlínunnar er sú að Mountain Horse býður meira úrval fyrir herra.

Mountain Horse ætlar að vinna enn betur í sjálfbærni í framtíðinni. Við erum stolt af okkar framlagi til umhverfisverndar til þessa en ætlum ekki að gefa eftir í þeim efnum.

Það er mikilvægt fyrir okkur hjá Mountain Horse að fatnaðurinn okkar geti nýst í fjölbreyttu umhverfi og sé jafn nýtilegur útivið, í hesthúsinu og hversdags. Það er kominn tími til að Mountain Horse marki sér nýja stefnu – Beyond the ride – framyfir útreiðarnar.

Beyond the ride

Hvað sem það kostar – hvenær sem það skiptir máli
Hvert sem lífið leiðir þig
Hjá Mountain horse trúum við að maður og hestur séu ekki sterkari en tengslin milli þeirra.
Þar eru töfrarnir, þar verður allt mótlæti yfirunnið.
Allt sem við gerum stuðlar að því að styrkja þessi tengsl.
Allt sem við gerum fer framyfir útreiðarnar.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana