Um þessar mundir fer fram í Menntaskólanum í Kópavogi, árleg nemakeppni í bakstri. Kornax stendur fyrir keppninni í samvinnu við bakaradeild Hótel- og matvælaskólans í MK, Landssamband bakarameistara og Klúbb bakarameistara.
Keppnin er einstakt tækifæri bakaranema til að auka við faglega færni og öðlast dýrmæta reynslu sem mun nýtast vel í verkefnum eins og verklegu lokaprófi og sveinsprófi. Verkefni nemanna er að útbúa glæsilegt veisluborð sem samanstendur af ýmsu brauðmeti, vínarbrauði og skrautstykkjum. Til stiga telst jafnframt uppstilling og borðskreyting.
Áhugasamir geta fylgst með úrslitum dagana 12. og 13. október á opinni Twitch rás keppninnar.
Keppendur í ár eru eftirfarandi:
Gunnar Jökull Hjaltason, Mosfellsbakarí
Guðbjörg Salvör Skarphéðinnsdóttir, Kökulist
Karen Guðmundsdóttir, Gulli Arnar
Kristin Margret Ívarsdóttir, Kökulist
Sunneva Kristjánsdóttir, Sandholt
Pálmi Hrafn Gunnarsson, Passion