Lífland opnar verslun á Selfossi

Lífland lýkur upp dyrum að nýrri verslun á Selfossi í björtum og rúmgóðum húsakynnum að Austurvegi 69 föstudaginn 30. september. Í tilefni opnunarinnar verður slegin upp opnunarhátíð laugardaginn 1. október fyrir gesti og gangandi sem vilja fagna með okkur.

Í boði verða glæsileg opnunartilboð og glaðningur fyrir börn. Þá verða í boði grillaðar pylsur, flatkökur, kaffi og kaka frá kl. 12-15 auk þess sem  Karlakór Hreppamanna stígur á stokk og tekur nokkur lög að sunnlenskum sveitasið. Að auki verður einn heppinn vinningshafi dreginn úr „Lífland Selfossi“ hópnum á Facebook sem vinnur 25.000 króna úttekt í versluninni.

Við bindum vonir við að nærumhverfið taki nýrri verslun Líflands fagnandi og hlökkum til að taka á móti sem flestum á opnunarhátíðinni.

Verslunin býður upp á fjölbreytt úrval af búrekstrar- og landbúnaðarvöru svo sem áhöldum, hreinlætisvörum, fóðri og bætiefnum. Hjá Líflandi er einnig breitt úrval af girðingarefnum, meindýravörnum, gæludýravöru, útivistarfatnaði og allt til hestamennsku svo sem reiðfatnaður, skeifur, fóður, reiðtygi og undirburður.

20% afsláttur er af flestum vörum í búðinni á opnunartilboðum sem gilda út miðvikudaginn 5. október. Vörur á tilboði eru eftirfarandi: Allur fatnaður og skór, allar MB Collection vörur, Back on track heilsuvörur, Kerbl gæludýravörur, Chrisco gæludýravörur, Arion gæludýrafóður, Canifors gæludýrafóður, brynningarskálar, rafgirðingaefni, hestabætiefni, kúabætiefni, hesta-, kinda-, hænsna- og kúa og nautgripafóður í smásekkjum.

Verslunarstjóri á Selfossi verður Guðbjörg Jónsdóttir sem er mörgum sunnlenskum bændum kunn. Hún er fyrrverandi kúabóndi sem hefur meðal annars unnið að félagsmálum bænda í gegnum árin. Með henni verða Sjöfn Finnsdóttir og Guðrún Margrét Valsteinsdóttir sem báðar eru nýlega fluttar í Flóann.

Með nýju versluninni verða verslanir Líflands alls sex talsins, en fyrir eru verslanir á Akureyri, Blönduósi, Borgarnesi, Reykjavík og Hvolsvelli sem er ætlað að bæta þjónustu í heimabyggð við bændur og aðra íbúa eða ferðamenn á svæðinu.

Verslun Selfossi


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana