Samkomulag hefur náðst milli GEA Farm Technologies og Reime Landteknikk um að Lífland taki við innflutningi og þjónustu á vörum GEA Farm Technologies í Noregi. Í því skyni hefur Lífland stofnað norskt dótturfélag, Lifland Agri.
Lífland hefur um árabil verið umboðsaðili GEA á Íslandi og haft umsjón með sölu og allri þjónustu á GEA mjaltaþjónum, fóðurkerfum, mjólkurtönkum og flórgoðum. Það góða orðspor sem Lífland hefur varðandi þessa starfssemi leiddi til þess að GEA Farm Technologies leitaði til okkar um að sjá um sömu starfsemi í Noregi. Lifland Agri mun formlega taka við sem sölu- og þjónustuaðili GEA Farm Technologies í Noregi um næstu áramót.
Arnar Þórisson framkvæmdastjóri framleiðslu, dreifingar og tækjadeildar Líflands hefur haft veg og vanda af öllum undirbúningi og mun leiða starfsemina í Noregi til að byrja með. Með þessu móti munum við styrkja ennþá frekar okkar þekkingu og þjónustu varðandi alla tækni og þróun í landbúnaði.