Nú styttist óðum í Landsmót hestamanna sem fram fer á Gaddstaðaflötum á Hellu dagana 30. júní til 6. júlí næstkomandi. Þessa dagana er starfsfólk Líflands og Top Reiter í óða önn að undirbúa sölubása sína sem verða á mótssvæðinu frá og með þriðjudeginum 1. júlí og verða opnir alla daga mótsins eftir það. Á þriðjudag og miðvikudag er opnunartíminn frá 10:00 til 19:00 en frá fimmtudegi til sunnudags verður opið frá 10:00 til 19:30. Í boði verður gott úrval af búnaði fyrir bæði hross og knapa, hvort sem er í hestaferðina, á keppnisvöllinn eða hinar almennu útreiðar.
Frábær tilboð verða á völdum vörum og mun starfsfólk veita afgreiðslu og ráðleggingar með bros á vör!