KYNNINGARFUNDUR LANDSLIÐSNEFNDAR

Lífland er einn stærsti stuðningsaðili landsliðsins
Lífland er einn stærsti stuðningsaðili landsliðsins
Landsliðsnefnd og liðsstjóri Íslenska landsliðsins boða til kynningarfundar miðvikudaginn 16. janúar n.k. fyrir alla þá sem hafa hug á því að taka þátt í  úrtöku fyrir heimsmeistaramót íslenska hestsins sem haldið verður í Berlín í byrjun ágúst.

Haldin verður röð fyrirlestra ásamt því að knöpum verður leiðbeint af þekktum og reyndum þjálfurum og dómurum  í vetur. Sú dagskrá verður kynnt nánar á fundinum og mun landsliðsnefndin og liðsstjórinn Hafliði Halldórsson fara yfir dagskrána lið fyrir lið og skýra einstaka liði hennar ásamt því að svara spurningum fundargesta.

Þjálfun knapa verður skipt í fullorðinshóp og ungmennahóp en fræðslufundir verða sameiginlegir báðum hópum.

Fyrirhugað þjálfunarnámskeið með Julio Borba og Rúnu Einarsdóttir er laugardaginn 19. janúar n.k. og mun liðsstjóri gefa nánari upplýsingar um það námskeið á fundinum.

Dagsetning og tími: miðvikudagur 16. janúar
Tími: kl. 17:00
Staður: ÍSÍ, Engjavegi 6, Rvk. Salur E, 3. hæð.

Landsliðsnefnd LH hvetur áhugasama til að mæta og kynna sér metnaðarfullt starf nefndarinnar og liðsstjórans á HM-árinu 2013.

Sjáumst!

Landsliðsnefnd LH & Hafliði Halldórsson

Tekið af vef lhhestar.is


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana