Knapar láti ljós sitt skína

Landssamband hestamannafélaga og VÍS hafa tekið höndum saman um að auka sýnileika knapa og fáka í svartasta skammdeginu. Verkefnið gengur út á að bjóða sérvalin endurskinsmerki til sölu í tugum verslana um land allt. Til að fyllsta öryggis sé gætt er endurskinið bæði ætlað knapa og hesti þar sem þeir geta orðið viðskila.
 
Á síðasta áratug hefur eitt banaslys orðið þar sem ekið var á endurskinslausan knapa og hest. Jafnframt eru þess fjölmörg dæmi að næstum hafi verið ekið á hest og knapa bæði innan og utan hesthúsasvæða. Talsverð hætta er á að hross fælist þegar bíll kemur óvænt að þeim og viðbrögð þeirra þá ófyrirsjáanleg. Þétting byggðar krefst enn frekari árvekni hestamanna gagnvart sýnileika sínum. Hesthús sem áður voru langt frá byggð eru komin í eða við byggðakjarna og öll umferð í nágrenni þeirra þyngst sem því nemur.   
 
Hestamenn, vinir þeirra og vandamenn geta nú auðveldlega fundið nauðsynlegar endurskinsvörur við hæfi sem jafnvel má lauma með í jólapakkann. Hestamannafélög eru hvött til að benda félagsmönnum sínum á brýna þörf endurskins því þá sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr en ella. Sá tími sem þannig gefst getur skipt sköpum. Á facebook síðu verkefnisins er hægt að nálgast upplýsingar um endurskinið og hvaða verslanir taka þátt í því. 
 
Lífland býður upp á mikil úrval endurskinsvara og hvetur alla knapa til að vera sýnilega í svartasta skammdeginu.

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana