Þann 1. maí tók gildi tveggja prósenta verðhækkun á öllu kúafóðri hjá Líflandi. Hækkunin nú stafar helst af hækkun á heimsmarkaðsverði sojamjöls en hækkanir eru jafnframt nokkrar á öðrum hráefnum.
Nánari upplýsingar veitir Hlynur Elfar Þrastarson, framkvæmdastjóri sölusviðs Líflands (hlynur@lifland.is).
Hér má finna uppfærðan fóðurverðlista Líflands.