Hvað er best að gefa smáfuglunum?

Fuglategundir eru aðlagaðar mismunandi fæðuvali. Sumar eru sérhæfðar fræætur og hafa sterkbyggðan gogg til fræáts. Aðrar eru sérhæfðar skordýraætur og enn aðrar eru meiri alætur

Þess vegna þýðir ekki að bjóða hvað sem er og mikilvægt að aðlaga matargjafirnar að þeim tegundum sem eru líklegar til að líta við í garðinum. Auk þess er umhverfið á gjafastaðnum líklegt til að takmarka eða opna á fæðugjafir fyrir tilteknar tegundir.

Fuglar eru nokkuð vanafastir og sækja á staði sem þeir þekkja. Þess vegna þarf stundum smá þolinmæði og staðfestu til að venja fugla á nýjan gjafastað. Gott er að nota t.d. sundurskorin epli og brauðbita sem sjást úr nokkurri fjarlægð til að hæna fugla að í byrjun.

Gott er að hafa í huga að færa gjafastaðina til svo smitálagi milli fugla af völdum sníkjudýra og sjúkdóma sé haldið í lágmarki og gott er að sópa og þrífa fóðurbretti og fuglaböð reglulega.

Skynsamlegt er að fóðra fræætur (snjótittlinga, auðnutittlinga) á öðrum stöðum en t.d. þresti og stara sem velja aðra fæðu.


 

Snjótittlingur

Fóður: Maískurl, heilt hveitikorn, fræblanda Luxus.

Aðstaða: Dreifa fóðri á bersvæði/stóra grasflöt eða stórt fóðurbretti á opnum stað.

Atferli: Koma helst í stórum hópum þegar snjóar og jarðbönn eru í úthaga.


 

Skógarþröstur - Svartþröstur - Gráþröstur - Stari

Fóður: Rúsínur, sólblómafrækjarnar, mjölormar, fitukúlur, tólgarkönglar, fylltar kókoshnetur, brauð, epli/perur, ber, kjötsag, tólg, smjör, soðið/uppbleytt korn o.fl.

Aðstaða: Dreifa fóðri á jörð eða fóðurbretti.

Atferli: Þrestir og starar eru hálfgerðar alætur meðal fugla en eru minnst fyrir heilt korn. Þrestir eru einfarar og bítast oft sín á milli um matargjafir. Auk þess gefa þeir gjarnan eftir þegar starar mæta á staðinn sem eru hópfuglar og þá er gott að dreifa fóðrinu inn undir runna og á staði þar sem þrestirnir fá frið. Þiggja mjölorma á sumrin og bera jafnvel í ungana. Gott að bleyta þá upp svo þeir fari ekki þurrir í ungana.


 

Auðnutittlingur - Krossnefur - Barrfinka

Fóður: Sólblómafrækjarnar, heilt sólblómafræ, fræblanda (Luxus), maískurl, hirsi, hampfræ, fitukúlur.

Aðstaða: Gefa úr fóðurskömmturum eða á fóðurbrettum sem standa í 1,5-2 metra hæð á staur eða hengdir í tré.

Atferli: Koma gjarnan í litlum hópum og eru nokkurn tíma að finna og aðlagast nýjum gjafastað. Því gildir þrautseigja og að gæta þess að það sé ferskt og gott fóður í boði. Þegar auðnutittlingar hafa vanist nýjum gjafastað eru þeir mjög vanafastir og koma líka að sumarlagi.


 

Gæsir og endur

Fóður: Heilt hveitikorn, byggkorn, sólblómafrækjarnar, brauð, ber.

Aðstaða: Gefa á bersvæði/ opnum svæðum.

Atferli: Best er að byrja að gefa þessum fuglum á stöðum þar sem þeir eru þegar að venja komur sínar enda eru þeir mjög vanafastir í atferli og setjast ekki í litla húsagarða.


 

Músarrindill

Fóður: Þurrkaðir mjölormar, fitukúlur, tólg, hunda/ kattamatur, kjötsag.

Aðstaða: Mylja fóður í smáar agnir og bræða saman við tólg sem er svo slett inn í tré og runna.

Atferli: Músarrindill er ekki algengur í görðum en vanafastur ef hann á annað borð er til staðar. Hann er sérhæfð skordýraæta en þiggur fínt malaða, próteinríka fæðu úr dýraríkinu í bland við tólg/ uppbræddar fitukúlur sem slett er á greinar neðarlega í þéttum runnum.


 

Hrafn

Fóður: Katta- og hundamatur, mjölormar, fitukúlur, kjötmeti og innmatur.

Aðstaða: Gefa á opnum svæðum.

Atferli: Hrafninn er var um sig og getur verið lengi að venjast á gjafastaði en fundvís á fæðuuppsprettur og því nokkuð auðvelt að venja hann á matargjafir. Gæta skal þess að matargjafirnar séu ekki að draga að mávager og önnur meindýr.


 

Silkitoppa - Hettusöngvari

Fóður: Fitukúlur, feitmeti, epli/perur.

Aðstaða: Hengja fóðrið í tré og runna.

Atferli: Silkitoppa er reglubundinn flækingur og sérhæfð berja- og ávaxtaæta sem leitar nánast eingöngu í ferska ávexti og ber. Hettusöngvari er líka algengur flækingur sem sækir í feitmeti og ávexti.


 

Vörur


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana