Heysýnataka Líflands 2022

Líkt og undanfarin ár mun Lífland bjóða upp á heysýnatöku og greiningu þeirra í samstarfi m.a við Efnagreiningu ehf. 

Sýnin eru tekin með heysýnabor úr fullverkuðu fóðri og send með skjótum hætti í greiningu, gera má ráð fyrir að hún taki sjö til fjórtán daga.

Hvernig gagnast niðurstöður úr heysýnum?

Heysýni gefa upplýsingar um ástand og gæði gróffóðursins, sem er undirstaða fóðrunar á hverju búi. Margvísleg gildi eru mæld, m.a. þurrefnisinnihald, prótein, tréni, meltanleiki, sykur, gildi sem gefa vísbendingar um verkun og lystugleika, AAT og PBV gildi auk stein- og snefilefna svo nokkur lykilatriði séu nefnd. Niðurstöðurnar einar og sér geta gefið vísbendingar um hvert þarf að stefna með heildarfóðrun gripanna, þá með tilliti til kjarnfóðurs og annara fóðurefna sem gefin eru með heyjum. Niðurstöðurnar gagnast því beint í fóðuráætlunargerð.

Lífland býður upp á gerð fóðuráætlana og ráðgjöf

Lífland býður bændum upp á fóðuráætlangerð í NorFor kerfinu þar sem skoðað er hver af hinum fjölmörgu kjarnfóðurblöndum Líflands henta best viðkomandi heyjum. Fóðuráætlanir gerir Baldur Örn Samúelsson (baldur@lifland.is) fóðurfræðingur Líflands.

Æskilegar upplýsingar við bókun á sýnatöku:

  • Fjöldi sýna
  • Æskilegur sýnatöku dagur (ATH verkun þarf að vera 4-6 vikur frá slætti)
  • Annað sem viðkomandi vill koma á framfæri

Ráðgjafar Líflands veita nánari upplýsingar og taka við bókunum í síma: 540-1100, í verslunum Líflands eða á heysyni@lifland.is

Hlökkum til að heyra frá þér. 


 

Nánari upplýsingar:
Heysýnataka og fóðurráðgjöf Líflands.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana