Fóðrun hrossa er vandasamt verk enda fóðurþarfir einstakra gripa
misjafnar. Þannig getur til að mynda verið mikill munur á þörfum trippa
í örum vexti, fylfullra hryssa, keppnishesta, reiðhesta í lítilli eða
mikilli notkun, holdgrannra hesta eða hesta sem komnir eru á efri ár.
Hross skal ávallt fóðra að uppistöðu á gróffóðri. Á Íslandi eiga öll
hross sameiginlegt að lifa á landi þar sem stein- og snefilefnaskortur
er algengur í gróffóðri og beit. Ef gróffóðrið fullnægir ekki fóðurþörfum
hestsins er nauðsynlegt að bæta fóðrun með réttum bætiefnum,
kjarnfóðri, saltsteini eða steinefnum.
Lífland býður upp á fjölbreytt úrval af kjarnfóðri og bætiefnum fyrir
hross með misjafnar fóðurþarfir.