Eftir hlýtt og jafnrakt vor víða um land, er sláttur hafinn í mörgum sveitum og annarsstaðar styttist óðfluga í hann. Lífland hefur um árabil boðið upp á allt sem lýtur að verkun og pökkun heyfengs.
Allt til rúlluverkunar
Fóðuröflunin er undirstöðuþáttur í rekstri hvers bús og því mikilvægt að hafa réttu aðföngin við hendina. Lífland býður, eins og undanfarin ár, upp á fimm laga Megastretch rúlluplast frá Visscher í Hollandi. Megastretch plastið er rómað fyrir mjög góða endingu og afbragðs límeiginleika. Rúllurnar eru á hörðum plasthólk sem aflagast ekki í vætu og raka. Megastretch plastið fæst á 75 cm rúllum í dökk grænum lit. Listaverð er 11.900 heimkomið, en við hvetjum bændur til að leita tilboða. Við bjóðum einnig þaulreynt rúllunet frá Netex, sem og Ultra Grip bindigarn.
Stæðuverkun
Stæðuverkun hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár. Lífland hefur á boðstólunum stæðuplast, undir- og yfirplast frá Visscher. Stæðuplastið fæst í 50 metra rúllum og í 12, 14 og 16 metra breiddum í svörtu.
Íblöndunarefni í hey
Það er margt sem hefur áhrif á verkun heyfengs, en Advance íblöndunarefnið getur stuðlað að betri verkun en ella. Advance innheldur nokkrar gerðir mjólkursýrugerla og ensíma sem bæta gerjun heyjanna, auka meltanleika og tryggja þar með betur varðveislu fóðurefna og lystugleika. Lífland selur Advance í 150g staukum sem duga til íblöndunar í 50 tonn af nýslegnu grasi.
Kynnið ykkur úrvalið í vörum til heyverkunar og leitið tilboða hjá söluráðgjöfum okkar í síma 540-1100 eða með tölvupósti á lifland@lifland.is.