Þessa dagana er nýr og endurbættur vörulisti með rekstrarvörum fyrir sauðfjárbændur að berast inn á hvert heimili í dreifbýli. Þar ættu bændur að finna vöru við sitt hæfi.
Vert er að minnast á Ærblöndurnar okkar sem fjallað er um í bæklingnum. Um er að ræða kjarnfóður fyrir sauðfé sem hefur margsannað sig hjá íslenskum sauðfjárbændum. Það er með 15% og 24% próteininnihaldi og inniheldur sérstaka steinefna- og vítamínforblöndu sem löguð er að þörfum íslensks sauðfjár.
Einnig ber að nefna nýja tegund af lambamjólk, Sprayfo Lamb. Mjólkurduftið inniheldur hátt hlutfall undanrennudufts og er rómað fyrir mjög góðan leysanleika. Vandað hráefnaval og leysanleiki bætir meltanleika og minnkar líkur á skitu. Mjólkurduftið er einnig á hagstæðu verði og fæst í 10 kg pokum.