Árlegir Bændafundir Líflands

Lífland hefur um árabil boðað til bændafunda víða um land og verður þetta ár engin undantekning. Á bændafundunum hefur ýmsum fróðleik verið miðlað til bænda, einkum í sambandi við fóðrun- og aðbúnað mjólkurkúa. Sjá auglýsingu hér.

Á dagskrá fundanna nú verður samantekt á niðurstöðum heysýnagreininga og samanburður við fyrri ár, fjallað verður um helstu fóðurgrös, notagildi þeirra auk þess sem tæpt verður á sáðvöruúrvali Líflands. Farið verður yfir hvernig bæta má heilbrigði nautgripa með markvissri notkun bætiefna og nýjar kjarnfóðurblöndur Líflands verða kynntar. 

Fyrirlesarar verða Gerton Huisman, sérfræðingur frá Trouw Nutrition í Hollandi auk ráðgjafa Líflands. Hluti fyrirlestra mun fara fram á ensku, en verður þýddur jafnóðum. Boðið verður upp á veitingar og eru allir velkomnir. 

Fundirnir verða haldnir á eftirfarandi stöðum:

Þriðjudaginn 26. nóvember

Hótel Flúðir kl. 11:00

Hótel Hvolsvöllur kl. 20:30

Miðvikudaginn 27. nóvember

Hótel Hamar við Borgarnes kl. 11:00

Harmonikkusalurinn á Blönduósi kl. 20:30

Fimmtudaginn 28. nóvember

Hótel Varmahlíð, Skagafirði kl. 11:00

Hótel KEA, AKureyri kl. 20:30.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana