LÍF í tún og akra
Áburðarverðskrá 2020
Lífland býður í ár upp á áburð frá breska áburðarframleiðandanum Glasson Fertilizers. Úrvalið hefur verið endurbætt og nokkrar nýjar tegundir hafa litið dagsins ljós til þess að mæta enn betur þörfum viðskiptavina. Eins og áður er allt úrvalið aðgengilegt á Jörð.is og hægt að vinna áburðaráætlun með LÍF áburði Líflands.
Um er að ræða fjölkorna vöru framleidda samkvæmt evrópskum stöðlum.
- Selenbættur áburður nú með 25% meira seleni en áður
- Tvær vörutegundir meðhöndlaðar með Nutricharge sem eykur nýtanleika fosfórs og minnkar fastbindingu við jarðveg
- 22-3-3 LYSTAUKI - inniheldur salt (NaCl) sem getur aukið sykurmagn fóðurs og lystugleika.
- Nú í endurbættum stórsekkjum með þykkari innri poka. Skv. BS EN ISO 9001-2000 staðli
- Allur áburður húðaður með paraffínolíu til að auka flæði og minnka líkur á samloðun.
Við hvetjum áhugasama um að leita til sölumanna okkar í síma 540 1138 eða senda póst á netfangið aburdur@lifland.is og fá tilboð í sinn áburðarpakka.