Lífland heldur af stað í Vorlestina í dag og kemur við á 15 stöðum umhverfis landið á næstu dögum. Vorlestin er samstarfsverkefni Jötuns, Líflands, Skeljungs, Mjallar-Friggjar, IB á Selfossi og Landsbankans.
Megintilgangurinn er að kynna vörur og þjónustu fyrirtækjanna og verður fyrsti viðkomustaðurinn Hvolsvöllur þann 16. apríl, en vorlestin endar svo á Selfossi miðvikudaginn 22. apríl.
Lífland verður með vörubíl með uppsettum sýningarbás þar sem sem söluráðgjafar okkar verða til skrafs og ráðagerða. Enginn fer tómhentur heim þar sem við gefum fóðurskóflur, húfur og penna á staðnum. Flott sértilboð verða í verslunum Líflands og hjá helstu endursöluaðilum um landið þegar Vorlestin kemur við. Heitt verður á könnunni í bílnum okkar og gott með kaffinu.
Önnur fyrirtæki Vorlestarinnar verða jafnframt með ýmiskonar gjafir og áhugaverðar kynningar og ættu því allir bændur að finna eitthvað við sitt hæfi.
Verið velkomin. Við tökum vel á móti ykkur.
Viðkomustaðir Vorlestarinnar
- Hvolsvöllur fimmtudaginn 16. apríl // Skeljungur – Björkin kl. 10:00-13:00
- Vík fimmtudaginn 16. apríl // Víkurskáli kl. 15:00-17:00
- Kirkjubæjarklaustur fimmtudaginn 16. apríl // Skaftárskáli kl. 19:00-21:00
- Höfn föstudaginn 17. apríl // Vélsmiðja Hornafjarðar kl. 11:00-14:00
- Breiðdalsvík föstudaginn 17. apríl // Breiðdalsvík kl. 17:00-19:00
- Egilsstaðir laugardaginn 18. apríl // Jötunn – Sólvangi 5 kl. 09:30-13:00
- Húsavík laugardaginn 18. apríl // Skeljungur kl. 17:00-19:00
- Akureyri sunnudaginn 19. apríl // Jötunn og Lífland – Lónsbakka
- Varmahlíð sunnudaginn 19. apríl // Hótel Varmahlíð kl. 16:00-19:00
- Blönduós mánudaginn 20. apríl // Lífland kl. 10:00-12:00
- Staðarskáli mánudaginn 20. apríl // Staðarskáli kl. 14:00-16:00
- Hólmavík mánudaginn 20. apríl // Hólmavík kl. 19:00-20:30
- Búðardalur þriðjudaginn 21. apríl // KM þjónustan kl. 10:00-12:00
- Borgarnes þriðjudaginn 21. apríl // Skeljungur kl. 14:00-16:30
- Selfoss miðvikudaginn 22. apríl // Jötunn kl. 14:00-17:00
Vorlestin ... á leiðinni til þín