Bakar þú, eða einhver sem þú þekkir bestu smákökur í heimi? Það er komið að þessum tíma ársins aftur, Smákökusamkeppni Kornax og Gestgjafans!
Keppnin fer fram 22. október næstkomandi. Við leitum aftur að bestu súkkulaðismákökunni en skilyrði fyrir þáttöku er að í smákökunum sé bæði KORNAX hveiti og súkkulaði frá Nóa Siríus.
Svona fer keppnin fram:
Dæmt verður eftir bragði, áferð, lögun og lit og hvort sýnishorn séu einsleit og vel unnin. Senda skal u.þ.b. 15 smákökur í gegnsæju íláti, krukku eða plastpoka merktum með dulnefni. Rétt nafn, símanúmer og uppskrift skal látin fylgja með í lokuðu umslagi. Hver þáttakandi má einungis senda eina kökutegund. Kökunum þarf að skila inn þann 22. október n.k. á milli kl. 8:00 og 16:00 á skrifstofu KORNAX að Brúarvogi 1-3, 104 Reykjavík.
Verðlaunauppskriftinar munu birtast í kökublaði Gestgjafans sem kemur út þann 6. nóvember. Verðlaunin eru mjög vegleg:
1. vinningur
Glæsileg Kitchen-Aid hrærivél frá Einari Farestveit, KORNAX hveiti í baksturinn, ársáskrift að Gestgjafanum, gjafakarfa frá Nóa Siríus, smakkseðill fyrir tvo á veitingastaðnum Fiskmarkaðnum eða Grillmarkaðnum, Lukué makkarónusett frá versluninni Kokku, gjafabréf frá versluninni Nettó að verðmæti 30.000 kr.
2. vinningur
KORNAX hveiti í baksturinn, ársáskrift að Gestgjafanum, gjafakarfa frá Nóa Siríus, gjafabréf frá versluninni Nettó að verðmæti 20.000 kr.
3. vinningur
KORNAX hveiti í baksturinn, ársáskrift að Gestgjafanum, gjafakarfa frá Nóa Siríus, gjafabréf frá versluninni Nettó að verðmæti 10.000 kr.