Í listanum má finna vörur sem gott er að hafa til taks við sauðburðinn, allt frá fóðurvöru til hlífðarfatnaðar.
Auk hluta sem kalla má nauðsynlega á sauðburði, má finna ýmis verkfæri sem auka vinnuhagræðingu og tímasparnað til muna.
Eins og bændur vita er vinna við sauðburð röð óteljandi handtaka. Ef hægt er að spara einhver þessara handtaka mun hagræðingin hafa jákvæð áhrif á útkomu sauðburðarins. Þær vörur sem eru í bæklingnum má nálgast í verslunum Líflands á Akureyri, Blönduósi, Borgarnesi, Hvolsvelli og Lynghálsi í Reykjavík. En einnig má nálgast bæklinginn sjálfan útprentaðan í þessum verslunum.