Lífland mun líkt og síðustu tvö ár bjóða upp á áburð frá Grassland Agro á Írlandi. Í ár verða einar 16 vörutegundir á boðstólunum og er úrvalið nokkuð breytt frá fyrra ári, en sjö nýjar vörutegundir er að finna í vöruúrvalinu. Af þessum 16 vörum eru 4 einkorna og 12 fjölkorna. Áburðurinn verður fáanlegur í 600 kg stórsekkjum og verður honum skipað upp á Grundartanga og Akureyri líkt og í fyrra.
Meðal nýjunga er kornað kalk ásamt DAP áburði, þ.e. tvígildum NP áburði með 46% fosfórinnihaldi. Þess utan fjölgar selenbættum vörutegundum nokkuð. Áburðarúrvalið er allt að finna á Jörð.is, þannig að hægt er að velja vörurnar inn í áburðaráætlun. Er það von okkar hjá Líflandi að með auknu úrvali sé hægt að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina. Við hvetjum bændur til þess að hafa samband við söluráðgjafa okkar í síma 540 1138 og leita tilboða í sín áburðarkaup.
Hér má einnig nálgast PDF skrá af verðskránni