Norðurlandamótið í hestaíþróttum

Lífland var helsti styrktaraðili íslenska landsliðsins á Norðurlandamótinu sem haldið var 7. til 12. ágúst síðastliðinn.

Íslensku liðsmennirnir létu ekki á sér standa seinasta úrslitadaginn á Norðurlandamóti og lönduðu fimm gullum þann daginn og ekki hefði það geta verið mikið tæpara að ná sjötta og sjöunda gullinu í hús en þar munaði aðeins 0,03 á fyrsta og öðru sæti. Það voru úrslitin í B-flokki þar sem Sigurður Óli Kristinsson hlaut silfrið og A-flokki þar sem Sigurður V. Matthíasson hlaut silfrið.

Í lokaathöfninni fengu síðan tveir knapar svokölluð "feather price" reiðmennskuverðlaun fyrir framúrskarandi og áferðafallega reiðmennsku. Báðir knaparnir voru íslenskir liðsmenn, þau Védís Huld Sigurðardóttir og Haukur Tryggvason. Haukur hafði einnig fyrr um dagin náð gulli í fjórgangi fullorðinna og silfri í tölti með sömu einkunn og sigurvegarinn en tapaði á sætaröðun dómara. 

Liðið sendi 30 knapa með 34 hesta

Mótið var haldið á Margaretehof sem er staðsett í sunnarlega í Svíþjóð en þar er glæsileg aðstaða, tveir hringvellir, gott upphitunarsvæði, reiðhöll og dýralæknaaðstaða til fyrirmyndar. Það fór því einkar vel um hrossin okkar á meðan á mótinu stóð og gott samstarf var milli liðanna og starfsmanna mótsins. Margaretehof er í eigu Montan fjölskyldunnar sem einnig heldur út búgarði á Íslandi – Margrétarhof að Króki í Ásahreppi.

 

Árangur knapa á mótinu:

Gull: 

  • Védís Huld Sigurðardóttir  og Krapi frá Fremri-Gufudal – fimmgangur unglinga, 250m skeið unglinga, gæðingaskeið unglinga, 100m skeið og samanlagðar fimmgangsgreinar unglinga
  • Arnór Dan Kristinsson og Roði frá Garði – Tölt ungmenna og samanlagðar fjórgangsgreinar ungmenna
  • Haukur Tryggvason og Orka frá Feti – Fjórgangur fullorðina

Silfur:

  • Haukur Tryggvason og Orka frá Feti  - Tölt fullorðina, Samanlagðar fimmgangsgreinar fullorðina 
  • Egill Már Þórsson og Dofri frá Steinnesi  - Samanlagðar fimmgangsgreinar ungmenna, fimmgangur ungmenna
  • Arnór Dan Kristinsson og Roði frá Garði  - fjórgangur unmenna 
  • Hákon Dan Ólafsson og Snarpur frá Nýjabæ - 250m skeið ungmenna 
  • Sigurður V. Matthíasson og Fengur från Backome - A flokkur 
  • Sigurður Óli Kristinsson og Feykir frá Háholti - B flokkur  

Brons:

  • Viktoría Eik Elvarsdóttir og Framsýn frá Oddhóli - Slaktaumatölt ungmenna
  • Sigurður Sigurðarson og List frá Langstöðum - B flokkur 
  • Sigursteinn Sumarliðason og Snör frá Oddgeirshólum - Gæðingaskeið fullorðinna 

Önnur verðlaunasæti:

  • Finnur Bessi Svavarsson og Kristall frá Búlandi - Fjórða sæti í A flokki 
  • Selma Leifsdóttir og Darri frá Hjarðartúni - Fjórða sæti í unglingaflokki gæðingakeppni 
  • Glódís Rún Sigurðardóttir og Úlfur frá Hólshúsum - Fjórða sæti í fjórgangi ungmenna 
  • Askja Ísabel og Sjór frá Ármóti - Fjórða sæti í fimmgangi unglinga og fimmta sæti í gæðingaskeiði unglinga
  • Viðar Ingólfsson og Agnar frá Ulbæk - Sjöunda sæti í B-úrslitum fimmgangs og Fjórða sæti í samanlögðum fimmgangsgreinum fullorðinna 
  • Arnar Máni Sigurjónsson og Hlekkur frá Bjarnarnesi - Fimmta sæti í unglingaflokki gæðingakeppni 
  • Hákon Dan Ólafsson og Snarpur frá Nýjabæ - Fimmta sæti í 100m skeiði ungmenna
  • Reynir Örn Pálmason og Spói frá Litlu-Brekku - Fimmta sæti í T2 slaktaumatölti fullorðina 
  • Valdís Björk Guðmundsdóttir og Skorri frän Fjalarstorp - Fimmta sæti í fimmgangi ungmenna 
  • Katla Sif Snorradóttir og Eiður frá Ármóti - Fimmta sæti í fjórgangi ungmenna 
  • Ylfa Guðrún Svavarsdóttir og Sálmur frá Ytra-Skörðugili - Fimmta sæti í ungmennaflokki gæðingakeppni 
  • Guðlaug Marín Guðnadóttir og Hekla frá Akureyri - Fimmta sæti í 100m skeiði fullorðina
  • Þórður Þorgeirsson og Baldur frá Skúfslæk - Tíunda sæti í B-úrslitum fimmgangs og Fimmta sæti í gæðingaskeiði fullorðinna og samanlögðum fimmgangsgreinum fullorðinna
  • Teitur Árnason og Frami frá Hrafnsholti – Sjöunda sæti í B-úrslitum fimmgangs
  • Sölvi Sigurðarson og Leggur frá Flögu - Sjötta sæti í B-flokki gæðinga

 

B-úrslit – niðurstöður

Fimmgangur fullorðina – Fulltrúar Íslands

             07:      Viðar Ingólfsson - Agnar frá Ulbæk  6,98

 07:      Teitur Árnason - Frami frá Hrafnsholt          6,98

             10:      Þórður Þorgeirsson - Baldur frá Skúfslæk    6,93

             

B- flokkur

08:       Sigurður Sigurðarsson - List frá Langsstöðum         8,757

12:       Tryggvi Björnsson - Bastían frá Þóreyjarnúpi          8,406

A-flokkur

08:       Finnur Bessi Svavarsson - Kristall frá Búlandi        8,733    

 

Þjálfarateymi Íslands á mótinu:

Sigurbjörn Bárðarson – Liðstjóri

Kristinn Skúlason – Formaður landsliðsnefndar

Arnar Bjarki Sigurðarson – Þjálfari

Sigurður V. Matthíasson – Þjálfari

 

 

 

og landaði í


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana