Meistaradeild Líflands og æskunnar 2020

Meistaradeild Líflands og æskunnar

Meistaradeild Líflands og æskunnar hefst á sunnudaginn kemur með keppni í fjórgangi í Samskipahöllinni í Spretti. Mótið hefst kl. 12:00 og þar munu 40 keppendur í 10 liðum etja kappi í krefjandi keppni.

Að forkeppni lokinni verður gert hlé og síðan eru riðin B-úrslit. Sigurvegari þeirra úrslita öðlast þó ekki keppnisrétt í A-úrslitum, einfaldlega vegna þess að það yrði of mikið álag á hestinn á of stuttum tíma. Hins vegar hlýtur hann dýrmæt stig í keppni um stigahæsta knapann í lok deildarinnar í vor, um leið og allir í B-úrslitum öðlast góða reynslu í því að ríða úrslit.

Rúsínan í pylsuendanum eru svo A-úrslitin, þar sem fimm efstu knapar úr forkeppni fá annað tækifæri til að sýna hvað í þeim býr og þar getur allt gerst hjá toppknöpum á góðum og vel þjálfuðum hestum sínum.

Á vefnum www.mdeild.is fá finna ýmsar upplýsingar um Meistaradeild Líflands og æskunnar í hestaíþróttum, sem og á Facebook síðunni "Meistaradeild Líflands og æskunnar".

Við vonumst til að sjá sem flesta áhorfendur á pöllunum í Samskipahöllinni á sunnudaginn.
Frítt inn og allir velkomnir.

 

 

Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana