Lokamót Meistaradeildar Líflands og æskunnar

Meistaradeild Líflands og æskunnar lauk með glæsibrag síðastliðið miðvikudagskvöld þar sem keppt var í gæðingafimi og flugskeiði í boði Límtré-Vírnets í TM-Reiðhöllinni í Fáki.

Mótið tókst afar vel, það var frábær skemmtun að horfa á knapana ríða sín flottu gæðingafimi-prógröm og fylgjast svo með flugskeiði þar sem spennan var mikil!

Í lok kvöldsins var haldið lokahóf þar sem glæsileg verðlaun voru veitt bæði fyrir gæðingafimi og flugskeið ásamt því að verðlauna þrjá stigahæstu knapana í einstaklingskeppninni og þrjú stigahæstu liðin í liðakeppninni. Það má með sanni segja að lið Kerckhaert hafi átt glæsilegan vetur og liðsmennirnir sátu ekki auðum höndum þetta lokakvöld en Védís Huld Sigurðardóttir sigraði gæðingafimina, Glódís Rún Sigurðardóttir sigraði flugskeiðið og að lokum þá stóð Ylfa Guðrún Svafarsdóttir uppi sem sigurvegari einstaklingskeppninnar í Meistardeild Líflands og æskunnar.

Kerckhaert liðið sigraði liðakeppnina í bæði gæðingafimi og flugskeiði, og varð einnig stigahæsta liðið í heildarstigakeppninni – glæsilegt það!


Súsanna Sand Ólafsdóttir, formaður FT, afhenti Reiðmennskuverðlaun FT en þau voru veitt knapa sem sýndi fagmannlega reiðmennsku og íþróttamannslega hegðun jafnt innan sem utan vallar. Dómarar allra mótanna í vetur gáfu atkvæði og til gamans má geta að þá komust 15 knapar á blað og gefur það mynd af því hversu vel knaparnir stóðu sig í deildinni. Sú sem hlaut Reiðmennskuverðlaun FT var Thelma Dögg Tómasdóttir.

Við viljum þakka fyrir frábæran vetur, og þá sérstaklega Líflandi, Hrímni, Equsana, Toyta Selfossi, Hraunhamri, Límtré Vírneti, Óla ljósmyndara, Elise Englund Berge og meðlimum í skipulagsnefnd deildarinnar. Einnig viljum við þakka þeim sem hafa staðið við bakið á okkur og hjálpað okkur í deildinni í vetur. Að halda svona deild krefst mikillar vinnu og það er ómetanlegt að finna styrkinn sem verður til þegar allir hjálpast að.


Myndir frá keppninni má sjá á Facebooksíðu Ólafs Inga ljósmyndara https://www.facebook.com/olafuringifoto.

Hér fyrir neðan má svo finna öll úrslit kvöldsins.

Védís Huld Sigurðardóttir sigraði gæðingafimina á Hrafnfaxa frá Skeggsstöðum með einkunnina 7,50, Arnar Máni Sigurjónsson á Arði frá Miklholti varð annar með 7,40 og Thelma Dögg Tómasdóttir varð þriðja á Mörtu frá Húsavík með einkunnina 7,33. Hér eru úrslit úr gæðingafiminni:

1

Védís Huld Sigurðardóttir / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum

7,50

Kerckhaert

2

Arnar Máni Sigurjónsson / Arður frá Miklholti

7,40

H. Hauksson

3

Thelma Dögg Tómasdóttir / Marta frá Húsavík

7,33

Margrétarhof

4

Ylfa Guðrún Svafarsdóttir / Glanni frá Hofi

7,27

Kerckhaert

5

Hafþór Hreiðar Birgisson / Villimey frá Hafnarfirði

7,17

Cintamani

6

Haukur Ingi Hauksson / Barði frá Laugarbökkum

7,17

H. Hauksson

7

Signý Sól Snorradóttir / Rektor frá Melabergi

7,00

Cintamani

8

Aron Ernir Ragnarsson / Váli frá Efra-Langholti

6,63

Josera

9

Gyða Sveinbjörg Kristinsdóttir / Skálmöld frá Eystra-Fróðholti

6,60

Margrétarhof

10

Selma Leifsdóttir / Glaður frá Mykjunesi

6,57

Leiknir

11

Heiður Karlsdóttir / Frakkur frá Laugavöllum

6,53

Leiknir

12

Aron Freyr Petersen / Adam frá Skammbeinsstöðum 1

6,53

Traðarland

13

Melkorka Gunnarsdóttir / Ymur frá Reynisvatni

6,50

Lið Reykjabúsins

14

Sara Bjarnadóttir / Gullbrá frá Hólabaki

6,47

Lið Reykjabúsins

15

Benedikt Ólafsson / Biskup frá Ólafshaga

6,47

Traðarland

16

Eygló Hildur Ásgeirsdóttir / Saga frá Dalsholti

6,30

Team WOW air

17

Þórey Þula Helgadóttir / Þöll frá Hvammi I

6,23

Austurkot

18

Agatha Elín Steinþórsdóttir / Blakkur frá Skáney

6,20

Team WOW air

19

Jóhanna Lilja P. Guðjónsdóttir / Kvistur frá Strandarhöfði

6,03

Mustad

20

Viktoría Von Ragnarsdóttir / Akkur frá Akranesi

5,83

Mustad

21

Sölvi Freyr Freydísarson / Vöndur frá Jaðri

5,50

Josera

22

Jón Ársæll Bergmann / Glói frá Varmalæk 1

0,00

Austurkot

 

Í liðakeppninni í gæðingafiminni varð Kerckhaert efst með 45 stig.

Kerckhaert

45

H. Hauksson

42,5

Margretarhof 

38

Cintamani 

37,5

Leiknir 

28,5

Traðarland

24

Lið Reykjabúsins

22,5

Josera

21

Wow

16

Mustad 

11

Austurkot 

11

BS. Vélar 

0

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Glódís Rún Sigurðardóttir sigraði flugskeiðið örugglega á Blikku frá Þóroddsstöðum en þær fóru á tímanum 5,24. Sigrún Högna Tómasdóttir og Ása frá Fremri-Gufudal urðu í öðru sæti á tímanum 5,56 og Kristján Árni Birgisson á Snæfríði frá Ölversholti urðu þriðju á tímanum 5,74. Hér eru úrslit úr flugskeiðinu:

1

Glódís Rún Sigurðardóttir / Blikka frá Þóroddsstöðum

5,24

Kerckhaert

2

Sigrún Högna Tómasdóttir / Ása frá Fremri-Gufudal

5,56

Margrétarhof

3

Kristján Árni Birgisson / Snæfríður frá Ölversholti

5,74

H. Hauksson

4

Rakel Ösp Gylfadóttir / Greipur frá Syðri-Völlum

5,78

Leiknir

5

Þorvaldur Logi Einarsson / Ísdögg frá Miðfelli 2

5,78

Josera

6

Kristófer Darri Sigurðsson / Vorboði frá Kópavogi

5,81

H. Hauksson

7

Elín Þórdís Pálsdóttir / Pandra frá Minni Borg

6,28

Austurkot

8

Hákon Dan Ólafsson / Spurning frá Vakurstöðum

6,32

Kerckhaert

9

Agnes Sjöfn Reynisdóttir / Von frá Mið-Fossum

6,33

Mustad

10

Kristrún Ragnhildur Bender / Karen frá Árgerði

6,43

Leiknir

11

Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Heimur frá Hvítárholti

6,6

Cintamani

12

Magnús Þór Guðmundsson / Brík frá Laugabóli

6,72

Lið Reykjabúsins

13

Rósa Kristín Jóhannesdóttir / Skemill frá Dalvík

6,85

Margrétarhof

14

Bergey Gunnarsdóttir / Brunur frá Brú

6,95

Cintamani

15

Ásdís Agla Brynjólfsdóttir / Brún frá Arnarstaðakoti

7,36

BS. Vélar

16

Helga Stefánsdóttir / Blika frá Syðra-Kolugili

7,72

Mustad

17

Arndís Ólafsdóttir / Dregill frá Magnússkógum

7,9

Lið Reykjabúsins

18

Sigurður Steingrímsson / Heiða frá Austurkoti

0

Austurkot

19

Kristín Hrönn Pálsdóttir / Gleipnir frá Stóru- Ásgeirsá

0

Team WOW air

20

Birna Filippía Steinarsdóttir / Vinur frá Laugabóli

0

BS. Vélar

21

Sigurður Baldur Ríkharðsson / Sölvi frá Tjarnarlandi

0

Traðarland

22

Kári Kristinsson / Kamus frá Hákoti

0

Josera

23

Hrund Ásbjörnsdóttir / Píla frá Stóru-Ásgeirsá

0

Team WOW air

24

Sveinn Sölvi Petersen / Hljómur frá Hestasýn

0

Traðarland

 

Í liðakeppninni í flugskeiðinu varð lið Kerckhaert líka stigahæst með 41 stig en með sama stigafjölda varð H. Hauksson en þar sem að sigurvegari flugskeiðsins kom úr liði Kerckhaert þá fór liðaplattinn til þeirra.

Kerckhaert

41

H. Hauksson

41

Leiknir 

35,5

Margretarhof 

35

Cintamani 

25

Mustad 

25

Josera

24,5

Austurkot 

22

Lið Reykjabúsins

21

BS. Vélar 

14

Traðarland

8

Wow

8

 

Ylfa Guðrún Svafarsdóttir sigraði einstaklingskeppnina með 43,5 stig. Védís Huld Sigurðardóttir kom fast á hæla Ylfu með 43 stig og Thelma Dögg Tómasdóttir þar á eftir með 41 stig. Eins og sjá má þá var mikil barátta á toppnum og spennan var mikil allt til enda mótsins.

Ylfa Guðrún

43,5

Védís Huld

43

Thelma Dögg

41

Glódís Rún

40

Sigrún Högna

25

Arnar Máni

18

Haukur Hauksson

16,5

Hafþór Hreiðar

16

Hulda María

16

Sigurður Baldur

15

Signý Sól

14,5

Kristófer Darri

14

Kristján Árni

9

Þorvaldur Logi

7,5

Rakel Ösp

7

Elín Þórdís

5,5

Hákon Dan

4,5

Aron Ernir

3

Benedikt

3

Gyða Sveinbjörg

2

Agnes Sjöfn

2

Bergey Gunnars

1

Sölvi Freyr

1

Selma Leifs

1

Kristrún Ragnhildur

1

 

 

Lið Kerckhaert varð stigahæsta liðið með 477 stig en liðið sigraði liðaplattann í öllum greinum deildarinnar nema í fimmgangi. Stelpurnar í Margrétarhofi urðu í öðru sæti með 425 stig og lið Cintamani í því þriðja með 397,5 stig.

 

Kerckhaert

477

Margretarhof 

425

Cintamani 

397,5

H. Hauksson

374

Traðarland

282

Leiknir 

250,5

Josera

230

Austurkot 

216,5

Lið Reykjabúsins

182

Wow

156

BS. Vélar 

141,5

Mustad 

130

 

 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana