Það var í nógu að snúast í gær þegar landsliðsknapar komu í höfuðstöðvarnar að sækja reiðfatnað sem Lífland leggur til fyrir þá knapa sem keppa fyrir Íslands hönd á HM í næstu viku. Þeir Þórir Haraldsson forstjóri Líflands og Kristinn Skúlason formaður landsliðsnefndar LH nýttu tækifærið og skrifuðu undir áframhaldandi samstarfssamning en Lífland hefur verið aðal styrktaraðili íslenska landsliðsins í hestaíþróttum um árabil.
Landsliðshópurinn hélt svo af stað í morgun til Berlínar og spennan magnast með hverjum deginum. Að þessu sinni færir Lífland knöpunum reiðfatnað frá Kingsland, tösku frá Mountain Horse, hanska frá Roeckl, hjálma frá Casco og skeið- og landsliðsboli.
Í samstarfi við Lífland voru hannaðir sérstakir stuðningsmannabolir fyrir íslenska landsliðið í hestaíþróttum og fást þeir í Líflandi og í Horses of Iceland básnum á HM í Berlín
Við óskum liðinu góðs gengis og vonumst eftir að allir nái sínum markmiðum.
ÁFRAM ÍSLAND!