10.01.2014
Lífland hefur ákveðið að lækka verð á kjarnfóðri. Lækkunin nær til allra fóðurtegunda og nemur hún 2%. Megin ástæður verðbreytinga er lækkun heimsmarkaðsverðs hráefna, þó sérstaklega maís og byggs sem notað er til fóðurgerðar auk styrkingar krónunnar. Lækkunin tekur gildi frá og með 12. Janúar 2014. Lífland hefur frá desember 2012 lækkað verð á kjarnfóðri um allt að 12% og er það liður í stefnu fyrirtækisins að neytendur njóti jákvæðrar þróunar hráefnaverðs á heimsmarkaði.
Allar nánari upplýsingar veitir Þórir Haraldsson, framkvæmdastjóri Líflands, í síma 540-1100.