Nú um mánaðarmótin lækkar Lífland verð á kjarnfóðri um 1-1,5%, mismikið eftir tegundum. Lækkunin nú skýrist fyrst og fremst af styrkingu krónunnar frá síðustu verðlækkun Líflands.
Þessar lækkanir eru liður í virkri vöktun félagsins á markaðsaðstæðum og í þeirri stefnu að viðskiptavinir njóti verðþróunar hráefna eins og kostur er. Nánari upplýsingar veitir Hlynur Elfar Þrastarson, framkvæmdarstjóri sölusviðs.
Uppfærða kjarnfóðurverðskrá Líflands er að finna hér.