Viðskiptablaðið og Keldan eru nú í samstarfi um val á Fyrirmyndarfyrirtækjum í rekstri árið 2017.
Um 850 fyrirtæki eru á þessum lista eða um 2% fyrirtækja landsins.
Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyriræki í rekstri þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði:
- Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárið 2016.
- Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárinu 2016.
- Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárinu 2016.
- Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok árs 2016.
- Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok árs 2016. Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.
Lífland er stolt af því að vera Fyrirmyndarfirirtæki 2017
Hér má sjá umfjöllun Viðskiptablaðsins um Fyrirmyndarfyrirtæki 2017.