Innréttingar og mjaltaþjónar frá GEA

Samstarfssamningur við GEA

Lífland hefur um árabil flutt inn og þjónustað innréttingar frá Royal de Boer í Hollandi. Árið 2009 rann fyrirtækið inn í þýska tæknirisann GEA en Lífland sinnti áfram umboðinu fyrir Royal de Boer. Á dögunum undirrituðu fulltrúar Líflands og GEA samninga um samstarf fyrirtækjanna og er Lífland orðið umboðsaðili fyrir innréttingar frá GEA. Einnig bætast við mjaltaþjónar, mjólkurtankar, Mullerup heilfóðurkerfi, flórsköfuþjarkar og fleira tengt fjósbúnaði. Lífland mun samhliða þessu eflda samstarfi byggja upp þjónustudeild fyrir eigendur mjaltaþjóna og annars búnaðar frá GEA og þessa dagana eru tæknimenn í þjálfun hjá GEA í Danmörku. 

Fyrsti mjaltaþjónninn væntanlegur í haust

Búið er að handsala sölu á fyrsta GEA mjaltaþjóninum, en það eru bændurnir að Fellshlíð í Eyjafirði sem ríða á vaðið. Sá er af tegundinni MIone. MIone mjaltaþjónninn hefur það helst til síns ágætis að vera útfærður þannig að einn þjónn eða þjarki færist milli mjaltaklefa og getur sinnt allt að fimm klefum, eða á þriðja hundrað kúa. Jafnframt þessu fara þvottur spena, þurrkun, formjaltir og mjaltir fram í spenahylkjum eftir ásetningu og styttir sú tækni viðveru hverrar kúar í mjaltaklefa. Ásetning spenahylkja þykir jafnframt mjög skilvirk hjá MIone þjóninum og þjónninn lærir að þekkja og muna stöðu spena hjá hverri kú. 

Heildarlausnir fyrir kúabóndann

Með samstarfinu við GEA færir Lífland sig skrefi nær því að bjóða upp á heildstæðar lausnir fyrir kúabóndann þegar að fóðrun og aðbúnaði kemur. Með aukinni þjónustu, svo sem á sviði heysýnagreiningar og fóðuráætlunargerðar, er það stefna Líflands að bjóða jafnframt öfluga stoðþjónustu við notendur GEA tæknilausna og samþætta hana við þá ráðgjöf sem sérfræðingar Líflands veita nú þegar.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana