Hækkun á aksturstaxta 1. júlí 2017
Lífland ehf hefur ákveðið að hækka taxta á útseldum akstri um 9% frá 1. júlí 2017.
Lífland hækkaði síðast aksturstaxta í janúar 2012. Síðan þá hafa laun hækkað um 48% en laun eru lang stærsti liður í rekstri fóðurbíla. Olía og hjólbarðar hafa lækkað um 25% frá janúar 2012 og aðrir liðir í rekstri ökutækja hafa hækkað um 14 – 25%.