Fundir með ráðgjafa frá GEA

Lífland bíður upp á heildarlausnir fyrir fjós frá GEA í Þýskalandi sem er alþjóðlegt hátæknifyrirtæki með rekstur í meira en 50 löndum. Fyrirtækið var stofnað árið 1881 og framleiðir og selur háþróaðan tæknibúnað og framleiðsluvörur ásamt öðrum innréttingum og tækjum fyrir landbúnað.

Ef þú ert í þeim hugleiðingum að byggja nýtt fjós eða breyta núverandi fyrirkomulagi þá viljum við endilega aðstoða þig við skipulagninguna svo við getum saman náð því markmiði að hámarka gæði og framleiðslu.

Við viljum bjóða þér að fá fund með sérfræðingi okkar frá GEA sem hefur aðstoðað fjölda viðskiptavina okkar við að taka fyrstu skrefin og hefur sú aðstoð mælst mjög vel fyrir.

Á þeim fundi er farið yfir teikningar af fjósinu og viðraðar hugmyndir að betra fyrirkomulagi meðal annars með tilliti til umferðar gripa, vinnuhagræðingar og nýtingar mjaltaþjóna.

Hafðu samband við söluráðgjafa okkar til þess að bóka fund í síma 540 1100 eða sendu okkur tölvupóst á netfangið thjonusta@lifland.is fyrir mánudaginn 5.mars.

Við vonum að þessi þjónusta mælist vel fyrir og veki góð viðbrögð.

Auglýsing í bændablaðinu 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana