Fræðslufundir Líflands vöktu athygli bænda.

Fosfór mælist lágt í heysýnum.
Fræðslufundir fyrir bændur á vegum Líflands voru haldnir á sex stöðum á landinu í síðustu viku. Þetta var í sjötta sinn sem Lífland stóð fyrir fundarröð fyrir bændur, þar sem erlendir sérfræðingar héldu fyrirlestra um málefni tengd fóðurfræði og heilbrigði mjólkurkúa.

 

Að þessu sinni voru dagskráratriðin eftirfarandi:

1.      Niðurstöður heysýna, samanburður við fyrri ár.

2.      Notkun á heimaræktuðu byggi. Samspil byggs og kjarnfóðurs. Kostir byggnotkunar og hvað ber að varast.
Frá geldstöðu til byrjunar á mjaltaskeiði. Afleiðing af doða, neikvæðu orkujafnvægi og mismunandi holdstigi hjá mjólkurkúm. Hvernig fara Hollendingar að í þessum efnum?

Fyrirlesarar voru sérfræðingar frá hollenska ráðgjafafyrirtækinu Trouw Nutrition, þeir Gerton Husiman og Henri ter Wijlen. Að venju voru fyrirlestrarnir þýddir á íslensku jafnóðum.

Fundirnir voru að þessu sinni haldnir á Flúðum, Hvolsvelli, Hvanneyri, Blönduósi, Varmahlíð og Akureyri. Fyrirlestrarnir þóttu mjög fróðlegir og urðu umræður um ýmis efnisatriði þeirra á fundunum.

Lífland hefur nú um sex ára skeið tekið heysýni hjá þeim bændum, sem þess óska, og sent til rannsóknarstöðvarinnar BLGG í Hollandi. Niðurstöðurnar liggja gjarnan fyrir sjö til tíu dögum eftir að heysýnin eru send til Hollands. Greining þessara heysýna er mjög nákvæm, m.a. eru flest stein- og snefilefni greind, þar á meðal Selen. Það má sjá við samanburð heysýnanna að t.d. Fosfórmagn hefur lækkað í heyjum á síðustu árum og er nú vel undir lágmarksviðmiðun. Urðu nokkrar umræður um þessar upplýsingar á fundunum og töldu fundarmenn að ástæðan væri væntanlega samspil af minni áburðargjöf og einnig mismunandi skilyrði fyrir upptöku Fosfór úr jarðvegi.   

 

 

 

 

 

 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana