Hópur áhugasamra bænda fór í skoðunarferð á vegum Líflands til Stavanger í Noregi helgina 17-19 mars sl. Tilgangur ferðarinnar var að skoða nýjasta mjaltaþjóninn frá GEA, Monobox.
Hópurinn naut frábærrar leiðsagnar Idar Nedrebø sem er einn eigandi RL teknik sem er þjónustuaðili GEA í Noregi. Heimsótt voru þrjú fjós, tvö þeirra eldri fjós þar sem breytt var úr mjaltagryfju yfir í Monobox mjaltaþjón og eitt þeirra nýtt fjós þar sem kýrnar voru nýkomnar inn.
Í fyrsta fjósinu sem við skoðuðum hafði mjaltaþjónninn starfað í átta mánuði. Fjósið var mjög þröngt og því var ekki hægt að koma biðplássi við og hafa kýrnar þá frjálsan aðgang að þjóninum.
Fjós númer tvö var splunkunýtt en þar hafði þjónninn gengið í rúman sólarhring og var mjög áhugavert að sjá að allar kýr fóru sjálfvirkt í gegn án aðstoðar og engin þurfti handásetningu. Í þessu fjósi voru legupláss fyrir 60 kýr auk geldneytis og smákálfa. Einnig var flokkunarhlið eftir mjaltir en Monobox mjaltaþjónninn kemur tilbúinn fyrir slíkt hlið.
Í þriðja fjósinu hafði Monobox verið starfandi í mánuð. Þar hafði honum verið komið fyrir á mjaltagryfju bakkanum og mjaltagryfjan notuð áfram sem vinnuaðstaða bóndans.
Bændur voru mjög áhugasamir að prófa handásetningu aftan frá þar sem þeir eru ekki vanir slíku í mjaltagryfjum. Skemmst er frá því að segja að aðgengi að júgranu og mjaltaklasa var gott og reyndist ásetningin vera einföld og auðvelt að athafna sig frá þessu sjónarhorni.
Lífland þakkar bændum kærlega fyrir skemmtilega og fróðlega ferð.