Lífland tilkynnir hér með um lækkun á kjarnfóðri. Lækkunin nemur allt að 4%, mismunandi eftir tegundum.
Ástæða verðbreytingarinnar er lækkun á heimsmarkaðsverði hráefna til fóðurgerðar vegna nýrrar uppskeru. Þrátt fyrir
lækkun á mörkuðum undanfarið eru miklar blikur á lofti á hrávörumörkuðum og enn óljóst hvert hráefnaverð stefnir
á næstu vikum/mánuðum.
Lækkunin tók í gildi fimmtudaginn 1. september 2011.
Virðingarfyllst,
F.h. Líflands
Bergþóra Þorkelsdóttir
framkvæmdastjóri