Í tilefni þess að Þorrinn er genginn í garð, efnir Lífland til Þorraþræls í verslunum sínum sem hér segir:
- Akureyri: Fimmtudaginn 28. janúar kl. 21.00 í verslun Líflands, Óseyri 1.
- Borgarnesi: Fimmtudaginn 28. janúar kl. 21.00 í verslun Líflands, Borgarbraut 55.
- Blönduósi: Föstudaginn 29. janúar kl. 21.00, í verslun Líflands Efstubraut 1.
Verslanir munu opna kl. 20:30 þessi kvöld en dagskrá mun hefjast kl. 21:00.
Dagskráin verður með léttu sniði. Söluráðgjafar munu kynna nýjungar hjá Líflandi eins og sölu á áburði og mjaltarþjónum. Farið verður yfir niðurstöður heyefnagreininga liðins árs og rætt verður um fóðrun smákálfa. Karlakórar munu stíga á stokk og boðið verður upp á léttar og þjóðlegar veitingar.
Fjöldi kræsilegra tilboða á fóðurvöru, bætiefnum og rekstrarvöru.
Kíkið við í verslunum okkar, eigið skemmtilega kvöldstund og gerið góð kaup!