Nú er komið að árlegri Smákökusamkeppni Kornax.
Keppnin hefur slegið í gegn og á hverju ári fjölgar smákökunum sem streyma inn í keppnina.
Verðlaun eru veitt fyrir þrjú fyrstu sætin og eru þau ekki af verri endanum. Sá eða sú sem hreppir fyrsta sætið fær Kitchen Aid hrærivél frá Raflandi, gistinótt ásamt kvöldverði og morgunverði fyri tvo á Hótel Selfossi, glæsilegan kvöldverð fyrir tvo frá Matarkjallaranum, gjafakörfu frá Nóa Síríus, Glaðning fyrir tvo frá Óskaskrín, Nesbú egg og Kornax hveiti.
Nánari upplýsingar um keppnina má finna hér