Sigurvegarar í Smákökusamkeppni Kornax

Í dag fór fram val á bestu jólasmákökunni 2019 og var keppnin afar hörð að þessu sinni.
Á annað hundrað smákökur bárust og voru margar sigurvænlegar kökur í hópnum. En að lokum stóðu þrjár smákökutegundir eftir sem dómarar voru sammála um að væru þær bestu.

1. sætið Guðný Jónsdóttir

Mæru-lyst

150 g lint smjör
100 g dökkur púðursykur
100 g hrásykur
1 egg
200 g Kornax hveiti
1 tsk vínsteins lyftiduft
1 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar
2 tsk gróft malað hafsalt
rifinn börkur af einni appelsínu
150 g Síríus karamellukurl.

Hrærið smjör, púðursykur og hrásykur vel saman.
Bætið við eggi, appelsínuberki og vanilludropum og hrærið vel.
Sigtið saman hveiti, vínsteins lyftiduft og matarsóda og bætið við ásamt karamellukurli og hafsalti og hrærið varlega saman við.

Setjið á bökunarplötu með lítilli teskeið, kökurnar renna dálítið út. Bakið við 180°C í 7-10 mín.

Skraut ofan á:
Hvítir súkkulaðidropar og Síríus karamellukurl.
Bræðið súkkulaðidropana í vatnsbaði og setjið yfir kökurnar. Stráið karamellukurli yfir

2. sæti - Kókoskransar með ástaraldinfyllingu

2. sæti Hildur Margrét Ægisdóttir

Kókoskransar með ástaraldinfyllingu

Kókossmákökur:
100 g Kornax hveiti
100 g kókosmjöl
75 g sykur
100 g lint smjör
1/2 egg

Blandið þurrefnum saman og hrærið. Bætið smjöri og eggi út í og látið hnoðast aðeins í hrærivélinni. Nú þarf að hafa allar kökurnar með eins lögun, ég notaði botninn á non-stick muffins-formum í bakka. Fletjið þær snyrtilega út í botninn, ca 10 g af deigi í hvert form. Fyrir helminginn þarf svo að skera út miðjuna – ég notaði ca 1,5 cm í þvermál, vel hreinsað tússpennalok.

Bakið kökurnar við 180°C í ca 3 mín eða þar til brúnirnar eru farnar að dekkjast. Þær eiga svo að losna auðveldlega úr formunum ef slegið er létt á botninn. Kælið í ísskáp

Ástaraldin fylling:
Aldinkjöt með fræjum úr 3-4 ástaraldinum
1/2 msk sítrónusafi
1 tsk smjör
2 egg
2,5 dl sykur

Setjið öll hráefnin saman í skál, hrærið létt og setjið skálina yfir sjóðandi vatn, látið malla á lágum til meðalhita meðan smákökurnar eru útbúnar. Hrærið í við og við. Blandan á að þykkna töluvert. Látið kólna í ísskáp.

skreyting:
150 g hvítir súkkulaðidropar frá Nóa Síríus
smá kókosmjöl

Bræðið súkkulaðið í skál yfir heitu vatni. Dýfið sléttu hliðinni á kókoskökunni með útskornu miðjunni í súkkulaðið og dreifið örlitlu kókosmjöli yfir. Kælið í ísskáp. Smyrjið hrjúfu hliðina á heilu kókoskökunni með þykku lagi af ástaraldinfyllingunni. Búið svo til samloku sbr. mynd að neðan.

3. sæti - Pistasíudraumur

3. sæti Karen Lind Hilmarsdóttir og Snorri Viktor Gylfason

Pistasíudraumur með mjúkkri mandarínu- og karamellufyllingu

Pistasíudraumur:
250 g smjör við stofuhita
250 g sykur
325 g Kornax hveiti
1 egg
150 g muldar pistasíur

Þeytið smjör og sykur saman þar til er létt og ljóst.
Bætið við egginu og þeytið þar til allt er vel blandað saman
Bætið við hveitinu hægt og rólega saman við.
Látið loks pistasíur útí og blandið vel saman.

Bakið litlar smákökur við 200°C í 7-9 mín.

Mandarínujello:
100 g mandarínusafi
20 g sykur
1 1/2 matarlímsblað
2 tsk sítrónusafi
börkur af einni mandarínu

Leggið matarlímið í kalt vatnsbað og leyfið því að standa í 5 mín.
Sjóðið saman mandarínusafa, sykur, sítrónusafa og sítrónubörk.
Þegar það er búið að sjóða í eina mínútu, kreistið vatnið úr matarlíminu og hrærið saman við blönduna.
Hellið blöndunni yfir bakka, með jöfnu þunnu lagi og kælið. Skerið út þá stærð og gerð sem óskað er eftir að fá á smákökurnar.

Karamellufylling:
75 g karamellukurl frá Nóa Síríus
75 g Rjómasúkkulaðidropar frá Nóa Síríus
40 g rjómi

Bræðið karamellukurlið og rjómasúkkulaðið saman yfir heitu vatnsbaði, bætið svo við rjómanum og blandið vel saman. Kælið í 10-15 mínútur áður en þið mótið fyllinguna.

Við þökkum eftirfarandi samstarfsaðilum kærlega fyrir samstarfið!

Nói Síríus Nettó Rafland Óskaskrín Matarkjallarinn Hotel Selfoss og Nesbú Egg

og ekki síður dómurunum í ár fyrir frábær störf

Albert Eiríksson matarbloggari og lífsnautnaséntilmaður
Helga Beck markaðsstjóri hjá Nóa Síríus
Silvía Haukdal kökugerðarmeistari
Carola Ida Köhler fulltrúi Kornax og sigurvegari frá því í fyrra

Dómarar 2019

 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana