Ráðgjöf um hestafóðrun á Akureyri

Lífland býður til fræðslufundar um fóðrun hrossa í verslun Líflands Óseyri 1, Akureyri laugardaginn 16. janúar n.k. frá kl 10-11:30.

Nú, þegar mörg hross eru á útigangi er mikilvægt að horfa til steinefna- og bætiefnafóðrunar. Íslenskan hagagróður getur skort ýmis mikilvæg stein- og snefilefni, t.d. selen og natríum og þarft að huga að réttri fóðrun. Í hönd fer landsmótsár þar sem vafalítið á eftir að reyna meira á hesta í þjálfun og brúkun og reynir þar einnig á fóðrunarþáttinn.

Dr. Susanne Braun er íslenskum hestamönnum að góðu kunn. Susanne hefur starfað sem dýralæknir á Íslandi í áratug. Hún er sérfræðingur í hestasjúkdómum og auk þess IVCA kírópraktor og reiðkennari ásamt því að vera alþjóðlegur íþróttadómari.

Dr. Susanne Braun dýralæknir mun miðla af víðtækri þekkingu sinni í máli og myndum auk þess að vera til skrafs og ráðagerða að loknu erindi sínu.

Veittur verður 15% afsláttur af hestafóðri frá Líflandi og Pavo, auk tilboða á völdum bætiefnavörum fyrir hesta. Það verður að sjálfsögðu heitt á könnunni.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana