Ráðgjöf um fóðrun hrossa

Lífland efndi til samkomu um fóðurráðgjöf fyrir hestamenn í verslun félagsins að Lynghálsi síðastliðin laugardagsmorgun. 

Björgvin Þórisson dýralæknir var á staðnum og nefndi það helsta sem hestamenn þurfa að hafa í huga varðandi fóðrun hrossa.

Í máli Björgvins kom fram að það er nauðsynlegt að haga fóðrun í samræmi við þá notkun sem hestar fá. Það er t.d. engum hestum hollt að vera of feitir, frekar en of holdgrannir. Gott hey er grunnfóður allra hesta, en því til viðbótar eru til ýmsar tegundir kjarnfóðurs svo sem Kraftur og Máttur svo og hágæða kjarnfóður frá PAVO.

Björgvin benti á þörf hesta fyrir steinefni og vítamín og nefndi steinefnakögglana Racing Mineral í því sambandi, en Racing Mineral inniheldur mjög hentuga blöndu af steinefnum og vítamínum fyrir íslenska hesta. Í máli Björgvins kom fram að til þess að steinefnagjöf geri sitt gagn, þarf að gefa það reglulega í nokkurn tíma. Hestar sem fá Racing Mineral reglulega, hafa takmarkaða þörf fyrir saltsteina því til viðbótar. Þá benti Björgvin á að ekki er heppileggt að skilja bætefnafötur eftir úti í gerðum eða haga í lengri tíma. Þegar vatn stendur í fötunum leysist hluti steinefnanna upp og hlutföll innihaldsins raskast því. Í tilfellum þar sem bætefnafötur eru skildar eftir utandyra, er því heppilegt að bora gat í gegnum innihaldið til þess að tryggja að riginingarvatn renni í burtu.

Lífland hefur um margra ára skeið tekið heysýni hjá bændum og sent til efnagreiningar í Hollandi. Nokkur fjöldi hestamanna nýtir sér einnig þessa þjónustu, til þess að vita sem best um efnainnihald heyjanna.

 


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana