Óvænt brúðkaup í Skógarrétt

Nú í haust var að venju réttað í Skógarétt í Reykjahverfi í suður-Þingeyjarsýslu.  Margt fólk kom saman og þar á meðal voru þau Signý Valdimarsdóttir og Valþór Freyr Þráinsson bændur á Litlu-Reykjum. Öllum að óvörum gerðu þau hlé á réttarstörfum og voru gefin saman af séra Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur við mikla hrifningu heimamanna og gesta. 

 

 

Það var árvökull starfsmaður Líflands sem tók eftir því að brúðguminn klæddist Mountain Horse úlpu í athöfninni en það vill svo til að Lífland er umboðsaðili Mountain Horse á Íslandi.

 

Starfsmaður okkar sendi til gamans eiganda Mountain Horse í Svíþjóði myndina ásamt umfjölluninni um brúðkaupið. Hann brást svona líka vel við og vildi gleðja þau í tilefni brauðkaupsins.  Hann bað okkur að afhenda þeim sitthvort skóparið í brúðargjöf frá fyrirtækinu.  Hjónin brugðu sér bæjarferð til Akureyrar þar sem þau sóttu skópörin ásamt blómvendi og freyðivíni.

 

 

Lífland óskar Signýju og Valþóri innilega til hamingju með brúðkaupið.


Karfa

Skoða körfu Karfan er tóm

Lífland ehf.

Verslun Reykjavík  |  Lyngháls 3  |  110 Reykjavík  |  Sími: 540 1125
Verslun Akureyri  |  Grímseyjargata 2  |  600 Akureyri  |  Sími: 540 1150
Verslun Borgarnesi | Digranesgata 6 | 310 Borgarnesi | Sími: 540-1154
Verslun Blönduósi |  Efstabraut 1  |  540 Blönduósi  |  Sími: 540 1155
Verslun Hvolsvelli | Ormsvöllur 5 | 860 Hvolsvelli | Sími: 487 8888
Verslun Selfossi | Austurvegur 69 | 800 Selfoss | Sími: 540 1165
Skrifstofa  |  Brúarvogur 1-3  |  104 Reykjavík  |  Sími: 540 1100
lifland@lifland.is

Opnunartímar verslana