Á síðustu árum hefur Lífland stóraukið úrval sitt á sviði hestafóðurs og bætiefna.
Þær lausnir sem bjóðast eru allt frá því að uppfylla almennar þarfir yfir í að nýtast vel þegar glímt er við sértæk vandamál á borð við óstyrkar taugar, orkuvandamál, magavandamál, hófavandamál og annað sem upp getur komið.
Kjarnfóðurblöndur Líflands, Kraftur og Máttur, eru notadrjúgir og hagkvæmir valkostir sem flestum hestamönnum
eru að góðu kunnir.
Meðal nýjunga eru góðgerlabættar lausnir á borð við PAVO Ease & Excel múslífóðrið sem bætist í sístækkandi
PAVO úrval, Pink Mash rauðrófukögglar og Protexin vörur sem hafa hitt vel í mark og hafa komið að góðu gagni fyrir hross sem eru undir miklu þjálfunar og keppnisálagi.
Á sviði bætiefna hefur Lífland stóraukið úrval sitt af Blue Hors bætiefna- og umhirðuvörunum sívinsælu og þær eru
nú aðgengilegar í fleiri verslunum en áður.
Við hvetjum þig til þess að kynna þér úrval okkar og vonum að þessi bæklingur nýtist við val á því sem best hentar þegar fóðrun hestsins er annars vegar. Hver hesteigandi á að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í verslunum Líflands.