Þann 1. október næstkomandi lækkar kjarnfóðurverð hjá Líflandi um 3%. Lækkunin nú er tilkomin vegna hagstæðrar þróunar gengis ásamt lækkandi verði hráefna á heimsmarkaði. Þann 1. september s.l. lækkaði kjarnfóðurverð hjá Líflandi um 2% og er þetta því önnur lækkunin á rétt rúmu mánaðartímabili.
Segja má að nokkuð samfelld lækkunarhrina hafi staðið yfir frá því snemma árs 2013, að undanskilinni 4% hækkun í júlí s.l. Meðaltalslækkun á kjarnfóðri hefur á þessu tímabili verið rúm 25%, mismikil eftir tegundum. Lífland hefur verið leiðandi aðili í verðþróun kjarnfóðurs um árabil og eru þessar lækkanir liður í virkri vöktun félagsins á markaðsaðstæðum og í þeirri stefnu að viðskiptavinir njóti verðþróunar hráefna eins og kostur er.
Nánari upplýsingar fást hjá Jóhannesi B. Jónssyni, deildarstjóra landbúnaðarsviðs í s. 540-1140.